Dagur #29
Ég og Nestor frá Brasilíu. |
Í fyrradag átti ég stefnumót við hjólreiðaferðalang sem ég hef verið í sambandi við í gegnum Instagram. Ég lofaði honum fyrir löngu að gefa honum einhverjar upplýsingar fyrir ferðina hans til Íslands en svo eiginlega dissaði ég hann. Ég var bara kominn með hausinn á kaf í eitthvað annað, var illa fyrir kallaður og hjólaferðalögin eiginlega komin í þriðja eða fjórða sæti á þeim tíma.
En hann gafst aldrei upp á mér og á endanum náðum við saman á Bláu könnunni til að skiptast á hugmyndum og ræða saman. Það var ótrúlega gaman að hitta hann og þetta hrærði vel í hausnum á mér. Þetta er maður sem seldi fyrirtækið sitt og lagði heiminn að fótum sér.... eða hjólum kannski.
Nestor ferðast um allan heim á hjóli, bloggar, skrifar bækur og heldur fyrirlestra. Samræður okkar fóru reyndar langt út fyrir ferðalögin sem slík, báðir áhugamenn um heimspeki og lífið almennt. Ég var eitthvað lítið gíraður í að hitta hann en gekk út af kaffihúsinu uppljómaður og staðráðinn í að blása lífi í hjólaferðalögin á næsta ári. Og kannski bara blása meira lífi í lífið almennt. Hitta meira af áhugaverðu fólki, finna listagyðjuna, skrifa meira og skapa.
Annars eru æfingar komnar á gott skrið og ég er að ná forminu aftur. Í gær tók ég 4x5mín threshold æfingu og í dag tók ég 2x30 mínútur á 170W. Púlsinn er að færast í rétt horf og mér leið bara vel á hjólinu. Ég næ tveimur æfingum í viðbót áður en ég flýg til DK með börnin og svo stefni ég að því að hjóla úti vikuna sem ég kem heim, ef mér líst þannig á það. Úti ætla ég að reyna að hjóla í ræktinni á hótelinu og svo neyðist ég til að skokka eitthvað til að halda mér við. Vonandi espar það ekkert upp meiðslin að hjassast 2-5 km á malbiki.
Ummæli