Færslur

Áfram gakk...

Mynd
Mitt annað heimili þessa dagana. Ætla ekki að kafa djúpt í einstaka æfingar en ég fékk rosalega jákvæð viðbrögð frá Ingvari þegar við gerðum upp síðustu viku. Ég var búinn að dansa á brúninni á veikindalínunni nokkuð lengi en náði að halda mér réttu megin og klára allar æfingar. Og ég kláraði þær ekki bara, heldur negldi ég þær allar nokkurnveginn fullkomlega. Þetta er gaman þegar gengur vel og ég vonandi held áfram að bæta mig. Það er hrikalega þægilegt að setja traust sitt á einhvern annan og hætta að þurfa að hugsa um hvað maður gerir. Bara kíkir á Training Peaks, gerir það sem manni er sagt og treystir að það muni virka. Vikan sem er að byrja er örlítið auðveldari en sú síðasta en ég bæti kannski klukkutíma við á sunnudaginn ef þannig verður gallinn á mér. Ég fór í ræktina í gær (mánudag) og er með strengi eftir að hafa tekið hnébeygjur. Ég fann aðeins fyrir því í dag en vona að ég verði búinn að jafna mig á morgun því það er keppnisæfing þá. Skammturinn minn fyrir tveggja tíma hjó...

18 dagar í beit

Mynd
Æfingar síðustu vikna, ekki mikið um frí. Ég hef oft talað um hvað sé mikilvægt að hvíla svo maður nái að jafna sig og svo bæta sig í kjölfarið. Ég hef ekki alveg verið að fara eftir þessu og er kominn með 18 daga í röð af æfingum. En reyndar eru 4 af þessum æfingum það sem Ingvar kallar easy 60 og þar er maður bara rétt að snúa löppunum til að koma blóðflæðinu af stað (recovery æfing). En á morgun er komið að alvöru frídegi og ég ætla ekki að gera nokkurn skapaðan hlut. Í dag var tempo æfing sem var bara býsna skemmtileg en tók alveg vel í Æfing dagsins var tempo æfing af sverari gerðinni sem var 2:08 klst. Eftir upphitun komu tvær 20 mínútna keyrslur á 215 vöttum með 7 mínútna hvíld á milli. Eftir þetta kom svo 25 mínútna kafli á ca. 140 vöttum og það tók pínu í eftir öll átökin. Eins og með þröskuldsæfinguna þá finn ég hvað var mikilvægt að taka test til að stilla af sónin. Þó púlsinn hafi verið örlítið hærri en hann á að vera í tempo skv. TP, þá leið mér eins og í ekta tempo. Þetta...

Fín thresholdæfing

Mynd
Threshold æfing dagsins 3x(10+5m). Ég var búinn að hafa áhyggjur af því eftir æfinguna í gær að ég yrði ekki í formi í dag til að taka þessa löngu þröskuldsæfingu sem var á planinu. En þrátt fyrir kvef og aumingjaskap þá negldi ég hana bara býsna vel og er ánægður að vera kominn með nýtt FTP. Það lækkaði niður um 15 frá "úti FTP-inu" mínu og það munar alveg helling. Ég hélt fínum snúning öll 3 settin, öndunin var jöfn og góð og púlsinn lægri en hann var hjá mér í síðustu þröskuldsæfingum með gamla FTP-inu. Þegar ég kominn inn í hálft síðasta sett virtist hann vera að ná jafnvægi í 160 sem passar miðað við þröskuldspúlsinn sem TP's var búið að reikna út fyrir mig. Í heildina var æfingin 1:53 mín, 67 km og yfir 1000 kaloríur. Ég er ánægður með þetta. Rólegur dagur á morgun en svo er rúmlega 2 tíma tempo æfing á föstudag sem ég hlakka til á einhvern fáránlegan hátt. 

I walk the line

Mynd
Ég hlakka til að taka frídag á laugardaginn. Ég átti frídag í gær en skellti mér með Hörpu í ræktina í hádeginu. Það voru sennilega mistök. Mér leið samt alveg prýðilega framan af degi en var eitthvað hálf slappur eftir að ég kom heim. Það var brjálað að gera hjá mér og ég gat ekkert leitt hugann of mikið að þessu. Ég þreif húsið, gekk frá þvotti, verslaði og græjaði allt áður en börnin komu til mín. Ég vaknaði svo klukkan 05:45 í morgun til að taka æfingu (1,5 klst endurance) og það var vægast sagt þungt. Það tók sæmilega í bara að halda Z2 sem á að vera nokkuð þægilegt. Púlsinn var samt alveg á eðlilegu róli en lappirnar voru þungar og tíminn lengi að líða. Eftir æfinguna er ég frekar slappur, kvefaður og maginn í einhverju uppnámi. Ég er búinn að æfa 15 daga í röð og ég veit vel að það er ekki skynsamlegt. Á móti kemur að 3 af þessum dögum hafa verið mjög rólegir. Núna hef ég 30 klst. til að safna kröftum fyrir erfiða þröskuldsæfingu og verð bara að vona það besta. Ég ætla að næra m...

Rólegri vika í vændum

Mynd
Yndisleg helgi að baki, mikið af æfingum, mikið af mat og mikil slökun. Nú ætla ég aðeins að pústa og hreins hausinn áður en ég fer að taka heimilið í gegn. Börnin eru að koma á eftir og ekki annað að gera en að reyna aðeins að rutta til, þrífa og fara í búðina. Fyrstu vinnudagur vikunnar var tættur og ég er með gamalkunna tilfinningu um að allt sé að fara til fjandans. En ég veit innst inni að ég næ tökum á því ef ég ég er skipulagður og duglegur. Ef ég verð pródúktívur á morgun verð ég orðinn góður eftir vinnu. Ég spjallaði aðeins við Ingvar í tölvupósti og hann er bara ánægður með stöðuna á mér eftir testin. Ég er með fínt 1 mínútna power en þarf að bæta mig í 5 mínútna power (VO2max). Þegar ég geri það mun FTP-ið væntanlega fylgja með. Við erum bara að byrja tímabilið og þetta er sá árstími sem margir eru með allt niður um sig. Síðasta vika var nokkuð strembinn en ég er ánægður með hvernig ég kom út úr henni, sérstaklega þar sem ég er búinn að vera að berjast við kvef. Mér líður ve...

Stóri dómur á laugardegi [FTP-test]

Mynd
20 mínútna FTP-test. Jæja þá er ég búinn að þessu helvíti og þarf vonandi ekki að gera þetta í bráð. Gott að vera kominn með FTP-ið á hreint til að hægt sé að stilla af æfingarnar. Ég vaknaði í morgun og var frekar svekktur að kvefið er ekkert á undanhaldi. En mér leið samt í rauninni þokkalega og ákvað að láta vaða í þetta. Át graut með sýrópi, drakk kaffi og tók fréttir. Eftir einn og hálfan tíma fór ég svo að græja mig á hjólið og verð að viðurkenna að mér kveið fyrir þessu. Þetta er svo langt frá því að vera gott. Í upphitun var púlsinn strax hár miðað við álag en ég ákvað að halda dampi. Upphitunarkeyrslan var s.s. allt í lagi og ég notaði hana til að reyna að átta mig á því hvað ég gæti. Þar var ég að rúlla á ca. 300 vöttum og fann náttúrulega að það var töluvert yfir því sem var raunhæft fyrir mig að halda í 20 mínútur. Þegar 20 mínútna keyrslan byrjaði, þá ákvað ég að reyna að stilla mig af í kringum 260 vött og sjá hvort ég næði ekki að halda því allavega fyrstu 10 mínúturnar ...

Test #2 - niðurstaða

Mynd
5 mínútna VO2max test Jæja þá er annað af þremur prófum vikunnar búið og nú er bara stóri dómur eftir á laugardaginn (20 mín FTP test). Ingvar var búinn að leggja testið upp þannig að ég ætti að reyna að hanga í ca. 350 vöttum en það var aldrei raunhæft. Í Orminum í sumar náði ég afli upp á 338 w í fimm mín og það er yfir meðallagi gott.  Eftir að ég var búinn að taka 4 keyrslur í eina mínútu á ca. 310 vöttum ákvað ég að reyna að hanga í 320 vöttum (4,9 w/kg) í 3 mínútur og svo reyna að gefa í ef bensínið væri ekki búið. Ég fór hinsvegar fljótlega að dala og á endanum var ég farinn að leka undir 300 vött. Ég þorði ekki að standa upp til að klára mig fyrr en 30 sekúndur voru eftir en náði að klára þetta með reisn. Niðurstaðan 310 vött sem gera 4,7 w/kg sem telst gott en ekkert yfirburðar. Nú er ég kominn með smá kvef og feginn að 2 næstu dagar eru mjög rólegir og ég vona að ég nái að safna kröftum fyrir FTP testið. Ef ég verð með heilsu verð ég ánægður með allt á bilinu 250-260 vött...