Fín thresholdæfing
Threshold æfing dagsins 3x(10+5m). |
Ég var búinn að hafa áhyggjur af því eftir æfinguna í gær að ég yrði ekki í formi í dag til að taka þessa löngu þröskuldsæfingu sem var á planinu. En þrátt fyrir kvef og aumingjaskap þá negldi ég hana bara býsna vel og er ánægður að vera kominn með nýtt FTP. Það lækkaði niður um 15 frá "úti FTP-inu" mínu og það munar alveg helling.
Ég hélt fínum snúning öll 3 settin, öndunin var jöfn og góð og púlsinn lægri en hann var hjá mér í síðustu þröskuldsæfingum með gamla FTP-inu. Þegar ég kominn inn í hálft síðasta sett virtist hann vera að ná jafnvægi í 160 sem passar miðað við þröskuldspúlsinn sem TP's var búið að reikna út fyrir mig. Í heildina var æfingin 1:53 mín, 67 km og yfir 1000 kaloríur. Ég er ánægður með þetta.
Rólegur dagur á morgun en svo er rúmlega 2 tíma tempo æfing á föstudag sem ég hlakka til á einhvern fáránlegan hátt.
Ummæli