Rólegri vika í vændum
Yndisleg helgi að baki, mikið af æfingum, mikið af mat og mikil slökun. |
Nú ætla ég aðeins að pústa og hreins hausinn áður en ég fer að taka heimilið í gegn. Börnin eru að koma á eftir og ekki annað að gera en að reyna aðeins að rutta til, þrífa og fara í búðina. Fyrstu vinnudagur vikunnar var tættur og ég er með gamalkunna tilfinningu um að allt sé að fara til fjandans. En ég veit innst inni að ég næ tökum á því ef ég ég er skipulagður og duglegur. Ef ég verð pródúktívur á morgun verð ég orðinn góður eftir vinnu.
Ég spjallaði aðeins við Ingvar í tölvupósti og hann er bara ánægður með stöðuna á mér eftir testin. Ég er með fínt 1 mínútna power en þarf að bæta mig í 5 mínútna power (VO2max). Þegar ég geri það mun FTP-ið væntanlega fylgja með. Við erum bara að byrja tímabilið og þetta er sá árstími sem margir eru með allt niður um sig. Síðasta vika var nokkuð strembinn en ég er ánægður með hvernig ég kom út úr henni, sérstaklega þar sem ég er búinn að vera að berjast við kvef. Mér líður vel á hjólinu og finnst ég eiga nóg inni. Ingvar er að láta mig hjóla oftar og aðeins meira en ég var að gera og ég hef á tilfinningunni að það muni skila sér. Það er snemmt að fullyrða um það en ég vona það besta.
Ingvar er búinn að henda inn æfingum vikunnar og mér líst vel á þær. Ég ætla að vakna kl. 05:45 í fyrramálið og taka 1,5 klst. endurance. Á miðvikudaginn er þröskuldsæfing, 2x10 mín á FTP sem losar 2 tímana í heildina. Þá kemur auðveldur dagur og svo rúmlega tveggja tíma tempo-æfing á föstudaginn. Frí á laugardag og svo 2 klst endurance á sunnudag. Síðan mun ég reyna að bæta inn tveimur ferðum í ræktina í viðbót (fór líka í hádeginu í dag).
Ummæli