18 dagar í beit
Æfingar síðustu vikna, ekki mikið um frí. |
Ég hef oft talað um hvað sé mikilvægt að hvíla svo maður nái að jafna sig og svo bæta sig í kjölfarið. Ég hef ekki alveg verið að fara eftir þessu og er kominn með 18 daga í röð af æfingum. En reyndar eru 4 af þessum æfingum það sem Ingvar kallar easy 60 og þar er maður bara rétt að snúa löppunum til að koma blóðflæðinu af stað (recovery æfing). En á morgun er komið að alvöru frídegi og ég ætla ekki að gera nokkurn skapaðan hlut.
Í dag var tempo æfing sem var bara býsna skemmtileg en tók alveg vel í |
Æfing dagsins var tempo æfing af sverari gerðinni sem var 2:08 klst. Eftir upphitun komu tvær 20 mínútna keyrslur á 215 vöttum með 7 mínútna hvíld á milli. Eftir þetta kom svo 25 mínútna kafli á ca. 140 vöttum og það tók pínu í eftir öll átökin. Eins og með þröskuldsæfinguna þá finn ég hvað var mikilvægt að taka test til að stilla af sónin. Þó púlsinn hafi verið örlítið hærri en hann á að vera í tempo skv. TP, þá leið mér eins og í ekta tempo. Þetta var krefjandi en öndun undir kontról.
Á sunnudaginn ætla ég svo í ræktina og loka svo vikunni með 2 klst. endurance æfingu.
Ummæli