Stóri dómur á laugardegi [FTP-test]

20 mínútna FTP-test.

Jæja þá er ég búinn að þessu helvíti og þarf vonandi ekki að gera þetta í bráð. Gott að vera kominn með FTP-ið á hreint til að hægt sé að stilla af æfingarnar.

Ég vaknaði í morgun og var frekar svekktur að kvefið er ekkert á undanhaldi. En mér leið samt í rauninni þokkalega og ákvað að láta vaða í þetta. Át graut með sýrópi, drakk kaffi og tók fréttir. Eftir einn og hálfan tíma fór ég svo að græja mig á hjólið og verð að viðurkenna að mér kveið fyrir þessu. Þetta er svo langt frá því að vera gott.

Í upphitun var púlsinn strax hár miðað við álag en ég ákvað að halda dampi. Upphitunarkeyrslan var s.s. allt í lagi og ég notaði hana til að reyna að átta mig á því hvað ég gæti. Þar var ég að rúlla á ca. 300 vöttum og fann náttúrulega að það var töluvert yfir því sem var raunhæft fyrir mig að halda í 20 mínútur.

Þegar 20 mínútna keyrslan byrjaði, þá ákvað ég að reyna að stilla mig af í kringum 260 vött og sjá hvort ég næði ekki að halda því allavega fyrstu 10 mínúturnar og meta stöðuna eftir það. En það fór fljótlega að halla undan fæti og eftir 6-7 mínútur fór ég að missa afl. Eftir um 10 mínútur átti ég mislukkaðar tilraunir við að skipta um gír og reyna að auka snúninginn en þetta voru mistök og ég missti aflið niður. Þá skipti ég aftur í þyngri gír og ákvað að reyna að pumpa þetta áfram á ca. 260 vöttum þó snúningurinn væri á niðurleið.

Á meðan á þessu stóð átti ég 100 samtöl við Ingvar í hausnum þar sem ég var að útskýra fyrir honum að ég hafi þurft að hætta vegna þess að ég hafi ekki verið frískur. Ég var gjörsamlega að drepast mest allan tímann og vildi bara losna út úr sársaukanum. En ég vissi að ég myndi hata sjálfan mig fyrir að gefast upp.

Ég setti því undir mig hausinn og tók eina mínútu í einu og það var ekki fyrr en ég átti 5 mínútur eftir sem ég sá að það væri raunhæft að komast út úr þessu án þess að þetta gæti talist stórslys. Þegar 20 sekúndur voru eftir stóð ég svo upp og pumpaði 350 vöttum til að klára allt út af tanknum.

Niðurstaðan er FTP upp á 248w sem miðað við þyngdina á mér í morgun er 3,8 vött kg. Til að bera þetta saman við eitthvað þá eru 4w/kg fyrir hjólara álíka og það er fyrir hlaupara að fara marþon á undir 3 klst. Ég er því í ágætis hjólaformi þá mig langi alltaf að gera betur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap