I walk the line

Ég hlakka til að taka frídag á laugardaginn.

Ég átti frídag í gær en skellti mér með Hörpu í ræktina í hádeginu. Það voru sennilega mistök. Mér leið samt alveg prýðilega framan af degi en var eitthvað hálf slappur eftir að ég kom heim. Það var brjálað að gera hjá mér og ég gat ekkert leitt hugann of mikið að þessu. Ég þreif húsið, gekk frá þvotti, verslaði og græjaði allt áður en börnin komu til mín.


Ég vaknaði svo klukkan 05:45 í morgun til að taka æfingu (1,5 klst endurance) og það var vægast sagt þungt. Það tók sæmilega í bara að halda Z2 sem á að vera nokkuð þægilegt. Púlsinn var samt alveg á eðlilegu róli en lappirnar voru þungar og tíminn lengi að líða. Eftir æfinguna er ég frekar slappur, kvefaður og maginn í einhverju uppnámi.


Ég er búinn að æfa 15 daga í röð og ég veit vel að það er ekki skynsamlegt. Á móti kemur að 3 af þessum dögum hafa verið mjög rólegir. Núna hef ég 30 klst. til að safna kröftum fyrir erfiða þröskuldsæfingu og verð bara að vona það besta. Ég ætla að næra mig vel og reyna að hvíla mig eins og ég get í kvöld.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap