Test #2 - niðurstaða

5 mínútna VO2max test

Jæja þá er annað af þremur prófum vikunnar búið og nú er bara stóri dómur eftir á laugardaginn (20 mín FTP test). Ingvar var búinn að leggja testið upp þannig að ég ætti að reyna að hanga í ca. 350 vöttum en það var aldrei raunhæft. Í Orminum í sumar náði ég afli upp á 338 w í fimm mín og það er yfir meðallagi gott. 

Eftir að ég var búinn að taka 4 keyrslur í eina mínútu á ca. 310 vöttum ákvað ég að reyna að hanga í 320 vöttum (4,9 w/kg) í 3 mínútur og svo reyna að gefa í ef bensínið væri ekki búið. Ég fór hinsvegar fljótlega að dala og á endanum var ég farinn að leka undir 300 vött. Ég þorði ekki að standa upp til að klára mig fyrr en 30 sekúndur voru eftir en náði að klára þetta með reisn. Niðurstaðan 310 vött sem gera 4,7 w/kg sem telst gott en ekkert yfirburðar.

Nú er ég kominn með smá kvef og feginn að 2 næstu dagar eru mjög rólegir og ég vona að ég nái að safna kröftum fyrir FTP testið. Ef ég verð með heilsu verð ég ánægður með allt á bilinu 250-260 vött.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap