Færslur

Úr einu í annað

Var að klára að horfa á Útsvarið eins og við gerum alltaf á föstudagskvöldum hér á bæ. Magnað hvað þetta lið frá Fljótsdalshéraði lyftir manni alltaf upp, enda þrælskemmtilegt fólk. Ég held eiginlega meira með þeim heldur en Skagfirðinum, segi það og skrifa. Djöfull er það annars magnað að maður skuli vera að blogga um Útsvar, mætti halda að maður væri byrjaður að drekka aftur. Var að byrja að taka saman einskonar áramótauppgjör, eða öllu heldur annál fyrir 2011. Besta ár lífs míns, enda fæddist mér yndislegur sonur. Síðan fór ég að velta fyrir mér öðrum hlutum, t.d golfi. Hámark golfsumarsins var þegar skorkortið mitt var dregið úr á Opna Vodafone mótinu og ég fékk lampa, sem mig reyndar sárvantaði. Meiddur á hné, allir frískir að öðru leiti. Sæmilegt ár. Hér er eilíf hláka ef frá eru taldir fimbulkuldar sem herja á inn á milli. Veður válind og erfið til útivistar. Maður hefur alltaf laugina. Ef einhverjum kann að finnast þetta samhengislaust blogg, vil ég benda á að ég er netlaus...
Mynd
Jæja það er ekki hægt að saka mig um að hafa verið duglegur að blogga upp á síðkastið en það er ýmisslegt í bígerð hvað það varðar. Ég er að safna í gagnabankann fyrir hjólapistil og svo sat ég í gærkvöldi og tók saman skemmtilegan fróðleik um orkuinntöku íþróttamanna. Einnig leiðinlegar staðreyndir eins og að það taki meðalmanninn 4-5km á hlaupum að brenna tveimur laufabrauðskökum. Eitt af því sem ég hafði lofað mér um áramótin var að vera duglegri að éta baunir og grænmeti. Það kemur yfir mann einhver stólpípuandi eftir hátíðarnar þó maður trúí ekki á hreinsanir. Hef svosem verið nokkuð stabíll á því síðustu daga. Þegar ég var hinsvegar að stíga upp úr baðinu áðan áttaði ég mig á því að ég var bæði búinn að éta sviðakjamma í dag og heimagerða sperla með jafningi og kartöflum. Það mætti halda að ég væri á kúrnum hans Sigmundar Davíðs. Fór út að hjóla áðan í frostinu og er endanlega búinn að komast að því að ég verð að fá mér hlýrri vettlinga, svokallaða windstopper. Einnig ver...

Gleðilegt nýtt ár!

Ég ætla ekki að vera með áramótaheit í ár heldur lykilorð. Lykilorð ársins 2012 er "Hófsemd". Ég ætla að gerast hófsemdarmaður á nýju ári. Góða nótt, Bjarni

Umferð

Sé að það hefur verið nokkuð mikil umferð hérna inn á bloggið hjá mér í gær og í dag. Ekki veit ég hverju það gegnir en það er vísast best að reyna að henda inn nokkrum línum til að halda þessu á lífi. Við höfum haft það prýðilegt síðustu daga, strákarnir hjá pabba sínum en við gömlu sprekin fórum með Brynleif Rafnar í heimsókn til ömmu og afa í Mývó. Það hafði vægast sagt mjög róandi áhrif á líkama og sál. Við lágum eins og hlussur með slefið út á kinn en stóðum á fætur við og við til að nálgast meiri matvæli. Ég fór samt upp í sal og tók eina góða æfingu. Á morgun verður nóg við að vera. Byrjum á Gamlárshlaupi hérna á Króknum en föru svo upp í Hjaltadal til að éta. Kíkjum svo líklega á brennu á Hólum en stefnum síðan hingað á Krókinn til að horfa á Skaup og skjóta upp. Við verðum ekki alveg ein því Silla, Gummi, Anna Guðrún, Guðný Erla, Árni Gísli, Heiða, Louisa, Sigga Júlla, Haukur, Þórður, Stefán Snær, tengdapabbi og tengdamamma koma líka. Þröngt  mega sáttir sitja. Fór...

Meiri Jól

Mynd
Jæja þá er þetta búið spil. Búið að rífa upp pakkana og mann er strax farið að hlakka til næstu jóla. Sjálfsagt ekki vitlaust að fara að búa til nýjan tossalista og kaupa grænar baunir. Tengdó voru hjá okkur í gærkvöldi og við buðum upp á hamborgarahrygg og rjúpur. Eitthvað fyrir alla. Maturinn heppnaðist bara vel. Heimagerður ís á eftir með heitri sósu. Ég held að allir hafi verið prýðis ánægðir með gærkvöldið og nóg var um góðar gjafir. Frá Guðrúnu fékk ég hlaupapeysu, hlaupasokka, bók og statíf til að setja Garmin úrið á hjólið mitt, strákarnir gáfu mér Angry Birds handklæði og svo fékk ég forláta vetrarhlaupabuxur frá öllum í Brekku. Ég gaf Guðrúnu vetrarhlaupabuxur og hlaupajakka. Ég og Guðrún fengum svo sængurföt, handklæði, skurðarbretti og ég veit ekki hvað og hvað. Nú er bara að tæma kistuna og fara að skera og skera. Fara svo örþreyttur í bað, þurrka sér með nýju handklæðunum og leggjast svo til hvílu í nýjum sængurfötum og hafa með sér nýskornar afurðir af nýja bretti...

Gleðileg Jól!

  The Christmas Cod™ copyright © by Andrew Newman. All rights reserved. Jæja nú er þetta að bresta á. Drengirnir allir sofnaðir og maður bara situr hérna og bíður eftir jólasveininum. Ætlaði að slappa af í kvöld og bæta inn á græjubloggið en síðan hefur maður dottið inn í ýmis verkefni; þvott, pakka, búðarferð og svo reyndar smá leti og ómennsku inn á milli. Sama hversu tímanlega maður er í þessum undirbúningi, það bætist bara eitthvað nýtt við. Samt jákvætt að vera ekki í neinu stressi. Fór í hádeginu í dag með tengdamömmu, Guðrúnu og Brynleifi Rafnar í skötuveislu hjá Björgunarsveitinni. Þetta var einhver sveittasta skötuveisla sem ég hef komist í og ég get ímyndað mér að þetta sé svipað og að fara í gufubað þar sem migið er á steinana. Brynleifur tók andköf við að koma þarna inn, táraðist og varð fjótlega ómögulegur. Ég hámaði seinni diskinn í mig svo litla stýrið kæmist út. Fór svo með honum í bað áðan til að ná af honum fýlunni. Skatan var hinsvegar mjög góð en pizzur...