Umferð


Sé að það hefur verið nokkuð mikil umferð hérna inn á bloggið hjá mér í gær og í dag. Ekki veit ég hverju það gegnir en það er vísast best að reyna að henda inn nokkrum línum til að halda þessu á lífi.

Við höfum haft það prýðilegt síðustu daga, strákarnir hjá pabba sínum en við gömlu sprekin fórum með Brynleif Rafnar í heimsókn til ömmu og afa í Mývó. Það hafði vægast sagt mjög róandi áhrif á líkama og sál. Við lágum eins og hlussur með slefið út á kinn en stóðum á fætur við og við til að nálgast meiri matvæli. Ég fór samt upp í sal og tók eina góða æfingu.

Á morgun verður nóg við að vera. Byrjum á Gamlárshlaupi hérna á Króknum en föru svo upp í Hjaltadal til að éta. Kíkjum svo líklega á brennu á Hólum en stefnum síðan hingað á Krókinn til að horfa á Skaup og skjóta upp. Við verðum ekki alveg ein því Silla, Gummi, Anna Guðrún, Guðný Erla, Árni Gísli, Heiða, Louisa, Sigga Júlla, Haukur, Þórður, Stefán Snær, tengdapabbi og tengdamamma koma líka. Þröngt  mega sáttir sitja.

Fór  í sund í gær og gengur ágætlega með sundplanið mitt. Ég er að fylgja Total Immersion Six Week Beginner Freestyle Stroke  Efficiency Program (hananú). Er búinn með 2 fyrstu æfingarnar og á 17 eftir. Þetta byggir allt á að gera ákveðnar æfingar sem margar hverjar líta ekki út fyrir að tengjast skriðsundi á nokkurn hátt en í lokin tengir maður þetta allt saman og útkoman á að vera allt að því getnaðarlegt skriðsund. Hljómar eins og töfrar og við skulum sjá til hver útkoman verður. Ég held að það sé lykillinn að því að skrönglast gegnum Olympíska þríþraut án skammar að koma létt út úr sundinu. Með því að spara orku í sundinu á maður nóg bensín á tanknum fyrir hjólið og hlaupið. Maður getur ekki unnið þríþrautina í sundinu en maður getur sannarlega tapað henni þar með orkubruðli.

Fór svo út að hjóla í dag og það var snilld. Hjólaði 15km; að heiman, upp á Hegranes, út á bryggju og svo heim. Þetta er óheyrilega gaman og hjólið er að koma frábærlega út. Ég á ennþá eftir að gefa mér tíma til að taka af því almennilegar myndir og skrifa góða grein.

Kíkti áðan á hlaup.com og var að kíkja á statistíkina hjá mér fyrir árið 2011. Það er nú einhver ruglingur í þessu þar sem bókin segir að ég sé bara búin að hjóla 19km. En ef samtalan mín fyrir hlaupin er rétt þá hef ég hlaupið 1265km á árinu (ca. 3,5km/dag að meðaltali). Ég ætlaði mér töluvert meira en veglengdir skiptir kannski ekki svo miklu máli og ég er búinn að vera óþarflega mikið meiddur. Vonandi þarf ég ekki að breyta markmiðum mínum mikið fyrir næsta ár, en það verða þó ekki endalok heimsins. Jæja nú er ég bara byrjaður að tuða og læt þetta gott heita.

Gleðilegt nýtt ár, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap