Gleðileg Jól!

 The Christmas Cod™ copyright © by Andrew Newman. All rights reserved.

Jæja nú er þetta að bresta á. Drengirnir allir sofnaðir og maður bara situr hérna og bíður eftir jólasveininum. Ætlaði að slappa af í kvöld og bæta inn á græjubloggið en síðan hefur maður dottið inn í ýmis verkefni; þvott, pakka, búðarferð og svo reyndar smá leti og ómennsku inn á milli. Sama hversu tímanlega maður er í þessum undirbúningi, það bætist bara eitthvað nýtt við. Samt jákvætt að vera ekki í neinu stressi.

Fór í hádeginu í dag með tengdamömmu, Guðrúnu og Brynleifi Rafnar í skötuveislu hjá Björgunarsveitinni. Þetta var einhver sveittasta skötuveisla sem ég hef komist í og ég get ímyndað mér að þetta sé svipað og að fara í gufubað þar sem migið er á steinana. Brynleifur tók andköf við að koma þarna inn, táraðist og varð fjótlega ómögulegur. Ég hámaði seinni diskinn í mig svo litla stýrið kæmist út. Fór svo með honum í bað áðan til að ná af honum fýlunni. Skatan var hinsvegar mjög góð en pizzur fyrir vandláta (Guðrúnu) fengu falleinkunn. Kaldar með 2 hárum hver sneið.

Annars ætla ég bara að óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hafið þakkir fyrir að kíkja á bloggið hjá mér í ár og á líðnum árum og vonandi mun ég hafa tíma til að halda því úti áfram.

Nú mega jólin koma fyrir mér...

Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Negri í Þistilfirði

Kylfingur spjall