Jæja það er ekki hægt að saka mig um að hafa verið duglegur að blogga upp á síðkastið en það er ýmisslegt í bígerð hvað það varðar. Ég er að safna í gagnabankann fyrir hjólapistil og svo sat ég í gærkvöldi og tók saman skemmtilegan fróðleik um orkuinntöku íþróttamanna. Einnig leiðinlegar staðreyndir eins og að það taki meðalmanninn 4-5km á hlaupum að brenna tveimur laufabrauðskökum.

Eitt af því sem ég hafði lofað mér um áramótin var að vera duglegri að éta baunir og grænmeti. Það kemur yfir mann einhver stólpípuandi eftir hátíðarnar þó maður trúí ekki á hreinsanir. Hef svosem verið nokkuð stabíll á því síðustu daga. Þegar ég var hinsvegar að stíga upp úr baðinu áðan áttaði ég mig á því að ég var bæði búinn að éta sviðakjamma í dag og heimagerða sperla með jafningi og kartöflum. Það mætti halda að ég væri á kúrnum hans Sigmundar Davíðs.

Fór út að hjóla áðan í frostinu og er endanlega búinn að komast að því að ég verð að fá mér hlýrri vettlinga, svokallaða windstopper. Einnig verður maður að fara að nota hlífðarbuxur eða fjárfesta í vetrar-hjólabuxum. Þetta er aðeins  annað en að hlaupa. Ef maður er í -5°C og er kominn á 20 km/klst er kælingin orðin eins og maður sé í -18°C.

Hvað æfingar og þríþraut varðar er ég svo sem ekkert að gera nema rétt að halda mér við. Ég sé það samt  á æfingardagbókinni að af  síðustu 11 dögum er ég búinn að æfa eitthvað 9 daga þó veðrið hafi ekki leyft neinar super-æfingar. Ég held því áfram að einbeita mér að sundinu. Það er líka kostur við sundið að geta tekið Daníel og Brynjar með.

Annars er allt gott að frétta af okkur. Strákarnir bara hressir þó Brynleifur litli sé með einhverja kvefpest. Hann nær því væntanlega úr sér fljótt. Vorum að skrá okkur með hann í ungbarnasund og það væri gaman að finna einhvern sem á góða myndavél sem þolir smá bleytu. Mikil tilhlökkun.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Negri í Þistilfirði

Veðurblíða og töluverð sól