Meiri Jól


Jæja þá er þetta búið spil. Búið að rífa upp pakkana og mann er strax farið að hlakka til næstu jóla. Sjálfsagt ekki vitlaust að fara að búa til nýjan tossalista og kaupa grænar baunir.

Tengdó voru hjá okkur í gærkvöldi og við buðum upp á hamborgarahrygg og rjúpur. Eitthvað fyrir alla. Maturinn heppnaðist bara vel. Heimagerður ís á eftir með heitri sósu.

Ég held að allir hafi verið prýðis ánægðir með gærkvöldið og nóg var um góðar gjafir. Frá Guðrúnu fékk ég hlaupapeysu, hlaupasokka, bók og statíf til að setja Garmin úrið á hjólið mitt, strákarnir gáfu mér Angry Birds handklæði og svo fékk ég forláta vetrarhlaupabuxur frá öllum í Brekku. Ég gaf Guðrúnu vetrarhlaupabuxur og hlaupajakka. Ég og Guðrún fengum svo sængurföt, handklæði, skurðarbretti og ég veit ekki hvað og hvað. Nú er bara að tæma kistuna og fara að skera og skera. Fara svo örþreyttur í bað, þurrka sér með nýju handklæðunum og leggjast svo til hvílu í nýjum sængurfötum og hafa með sér nýskornar afurðir af nýja brettinu.

Við gáfum strákunum flotta skíðahjálma og gleraugu. Við vorum fyrst ekki viss hvort við hefðum hitt í mark en þeir eru nú búnir að vera með þetta á hausnum síðan í gær þannig að þetta hefur sennilega ekki verið svo vitlaust. Þetta og margt fleira skemmtilegt má sjá í nýja Jól 2011 albúminu.

Uppi á Hegranesinu
 Ég fór út að hlaupa áðan. Langaði eiginlega frekar að hjóla en hafði ekki hlaupið svo lengi. Ætlaði að hlaupa Borgarsandinn en það var háflóð og brim þannig ég mátti finna nýtt plan. Lagði bílnum bara við sandinn og hljóp þjóðveginn upp á Hegranes. Stoppaði hjá Jóni Ósmann og óskaði honum gleðilegra Jóla. Það var kuldalegt hjá Jóni í dag; sunnan næðingur og -4°C. Þetta endaði í rúmum 8km.

Jón stendur vaktina
Jæja nú er að fara að koma sér upp í Hjaltadal og fá sér hangikjöt í góðra vina hópi. Ætla út að hjóla á morgun ef veðrið verður ekki leiðinlegt.

Hafið það gott elskurnar, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap