Færslur

Miskilningur ævi minnar

Í tölfræðitíma í dag komst ég að því að ég hef lifað í miskilningi allt mitt líf. Við lifum í raun í tvöföldum heimi. Annar er logarythmískur, hinn ekki. Við ráðum í hvorum heiminum við erum í hverju sinni og þannig gat ég snúið gögnunum mínum með log10 og allt varð cool og niðurstöðurnar meik. Síðan þarf maður að snúa aftur til baka í sinn raunverulega heim ef maður ætlar segja einhverjum frá niðurstöðunum. Ég veit ekki hvað hefði gerst eiginlega ef ég hefði gleymt að fara úr log- heimum áður en ég fór úr stofunni. Hefði sennilega orðið eitthvað skrautlegt, Bjössi bolla að renna sér á einhverju línuriti og ég verið 4 sekúndur að labba til Svíþjóðar. Í kvöld fór ég svo í kaffi til Ragnars vinar míns og fór að segja honum frá þessu. Við komumst að því að við erum skoðunarbræður hvað stærðfræði varðar, enda er þetta allt frekar spurning um smekk frekar en staðreyndir. Ragnar er mikill smekkmaður á stærðfræði og kenningar innar hennar. Fyrir okkur er ekkert til sem heitir mínus, allt byrj...

Nú næ ég þér amma mús

Ég var hér áðan búinn að skrifa alveg ótrúla hnitmiðaðann og ferskan pistil en þá gerði tölvan mér þann óleik að frjósa í hel. Þið fáið víst aldrei að vita um hvað ég skrifaði en í stuttu máli fjallaði það ekki um neitt. Þegar öllu því var lokið gat ég þess að í dag prófaði ég að nota regnhlíf enda veðrið til þess hefði ég haldið. Þessi dýrindis gripur fylgdi með Skodanum mínum og er kominn úr þar til gerðu regnhlífar hólfi sem er í vinstri afturhurðinni. Þetta er engin slor reghlíf skal ég segja ykkur, með Skoda silfurskjöld á haldi og sjálfsagt einir 10 fermetrar að flatarmáli uppspennt. Eftir að hafa hlaupið í bílinn og sótt regnhlífina setti ég sixspenserinn á hausinn, skaut út regnhlífinni og þrammaði af stað í skólann. Ég get ekki sagt að mér hafi liðið sem best fyrstu metrana. Það var ekki bara að ég væri hræddur við að takast á loft eins og amma mús heldur var þessi blanda af sixspencer og regnhlíf eitthvað að fljækast fyrir mér. Þetta voru mjög blendnar tilfinningar en þar sem...

Pulp Fiction, the suitcase mystery

Ragnar sendi mér hlekk á síðu um daginn þar sem fjallað er um hvað hafi verið í skjalatöskunni í Pulp Fiction. Ég get ekki sagt að það hafi plagað mig í gegnum árin, að hafa ekki vitað það en þó verð ég að viðurkenna að ég hef oft leitt hugann að því. Þessi lesning verður því miður ekki skemmtileg fyrir þá sem ekki hafa séð myndina en fyrir hina sem hafa séð hana þá gerir þetta hana 100x betri. Ég nennti ekki að pikka þetta sjálfur eða þýða þetta en svona hljómar þetta: If you all are anything like me then you had no idea what was in the briefcase in Pulp Fiction. So, through a friend of a friend of a friend who had a two hour conversation with Quentin Tarantino himself, I now know, and I thought I would pass along the information because it makes the movie even 100 times better than it already is. Remember the first time you were introduce to Marsellis Wallace. The first shot of him was of the back of his head, complete with band-aid. Then, remember the combination of the lock on the ...

Hvað er að frétta?

Mynd
Ég veit ekki alveg hvort það sé nokkuð að frétta? Haustið farið að banka á dyrnar og rigning og kuldi í dag. Þetta er eiginlega fyrsti dagurinn síðan ég kom hingað sem hægt væri að kvarta yfir veðrinu en þar sem ég er svo jákvæður í dag þá ætla ég að sleppa því. Enda er maður jú vanur veðurruddanum þarna heima og í samanburði þá er þetta bara peanuts. Það rignir þó lóðrétt hérna. Annars gengur þetta bara allt sinn vana gang, bara fara í skólann og vera cool náungi. Prófaði reyndar að læra heima í nokkra klukkutíma í gær og varð hálf óglatt eftir það. Leið eins og Otto næsehorn þegar hann sá alla maurana á blaðsíðunum og fékk svima. Það er vont en það venst kannski. Ég rak augun í það á ruv.is að Eimskip tvöfaldaði veltu sína á þriðja ársfjórðungi. Ég tel það öruggt að Gunnar Jónsson á mestan heiður af þessari auknu veltu og finnst viðeigandi að setja inn mynd af Gunnari þar sem það virðist hafa gleymst þegar fréttin var skrifuð. Myndina tók ég þegar ég var í heimsókn hjá Gunnari nú í s...

Afar hressandi

Tveir Bjarnar í steininum

Vegna frétta Morgunblaðsins af tveimur Björnum í steininum í Danmörku (sjá frétt á mbl.is ) þá fannst mér það skylda mín að láta vita að ég er en staddur í Noregi. Samt finnst mér það alveg dásamlegt að íslenskir stórglæpamenn skuli vera farnir að sýna heiminum snilli sína á sviði bankarána. Ég held að heimurinn væri öruggari staður ef það væri meira af íslenskum krimmum erlendis. Annars allt gott að frétta héðan. Fékk peninga í dag og keypti mér prentara og sushi. Fór svo og át ókeypis súpu og hlustaði á kór. Fór svo heim og át snakk og kenndi konu frá Tanzaníu á textavarp. Fór svo að blogga og ætla fljótlega að fara að sofa. En einn viðburðarríkur dagur að kveldi kominn hjá Lögreglustjóraembættinu í Viðey eins og segir í kvæðinu.

Kvart

Fátt er betra en að kvarta yfir einhverju og þusa og ég held að það sé oft á tíðum vanmetið. Ég og Ragnar gerðum þetta að þjóðaríþrótt okkar síðasta vetur og stunduðum gjarnan af áfergju. Við sátum gjarnan á kvöldin í sófanum mínum í Klettastígnum með kaffibolla í hönd og létum móðinn mása. Í stuttu máli fór þetta þannig fram að við töluðum um hvað við erum snjallir en aðrir heimskir. Þetta voru gjarnan hápólitískar umræður og teygðu anga sína víða t.d til skattkerfisins, vaxta, menntamála, samgöngumála, kosningamála, til helvítis bankanna, Guðmundar í Byrginu, Árna Jónsen, fótbolta og svo auðvitað var oft rætt um verðlagið á Íslandi. Mér duttu þessar verðlagspælingar í hug í dag þegar ég keypti mér pulsu og hálfan líter af kók á 70 kr/norskar. Samkvæmt gengisbreyti þá gera þetta skitnar 800 kr/íslenskar. Herlegheitin snæddi ég í Shell- sjoppu sem er hér steinsnar frá. Verði mér að góðu.