Miskilningur ævi minnar
Í tölfræðitíma í dag komst ég að því að ég hef lifað í miskilningi allt mitt líf. Við lifum í raun í tvöföldum heimi. Annar er logarythmískur, hinn ekki. Við ráðum í hvorum heiminum við erum í hverju sinni og þannig gat ég snúið gögnunum mínum með log10 og allt varð cool og niðurstöðurnar meik. Síðan þarf maður að snúa aftur til baka í sinn raunverulega heim ef maður ætlar segja einhverjum frá niðurstöðunum. Ég veit ekki hvað hefði gerst eiginlega ef ég hefði gleymt að fara úr log- heimum áður en ég fór úr stofunni. Hefði sennilega orðið eitthvað skrautlegt, Bjössi bolla að renna sér á einhverju línuriti og ég verið 4 sekúndur að labba til Svíþjóðar.
Í kvöld fór ég svo í kaffi til Ragnars vinar míns og fór að segja honum frá þessu. Við komumst að því að við erum skoðunarbræður hvað stærðfræði varðar, enda er þetta allt frekar spurning um smekk frekar en staðreyndir. Ragnar er mikill smekkmaður á stærðfræði og kenningar innar hennar. Fyrir okkur er ekkert til sem heitir mínus, allt byrjar á núlli. Einnig er hægt að deila með núlli, það gerist bara ekki neitt. Ef ég á 2 banana og skipti þeim ekki á milli neinna þá býst ég við að þeir verði bara inni í skáp ennþá og sennilega brúnir á litinn þegar ég kíki á þá (verð að vera duglegri við að éta ávexti). Hins vegar ef að konana frá Tanzaníu stelur þeim báðum frá mér þá á ég engan banana og þarf sennilega að éta eplin mín. Sem minnir mig reyndar á það að ég á nokkrar mandarínur sem eru svo sem ágætar. Það gæti orðið djöfull erfitt fyrir hana að stela af mér þremur banönum þannig að ég ætti mínus einn. Þetta gæti kannski endað með því að ég skuldaði henni banana...? Jæja þetta er ágætt í bili, ég verð að fara fram og athuga hvort ég eigi ekki einhverja ávexti eftir.

Ummæli
Fínn pistill hjá þér þetta hefurðu örugglega lært af Þráni heitnum Sitjum hér og sötrum bjór heima hjá Brynju.
Koss og knús
Solla og Brynja
Gaman að lesa spekina. Hún er góð.