Hvað er að frétta?
Ég veit ekki alveg hvort það sé nokkuð að frétta? Haustið farið að banka á dyrnar og rigning og kuldi í dag. Þetta er eiginlega fyrsti dagurinn síðan ég kom hingað sem hægt væri að kvarta yfir veðrinu en þar sem ég er svo jákvæður í dag þá ætla ég að sleppa því. Enda er maður jú vanur veðurruddanum þarna heima og í samanburði þá er þetta bara peanuts. Það rignir þó lóðrétt hérna. Annars gengur þetta bara allt sinn vana gang, bara fara í skólann og vera cool náungi. Prófaði reyndar að læra heima í nokkra klukkutíma í gær og varð hálf óglatt eftir það. Leið eins og Otto næsehorn þegar hann sá alla maurana á blaðsíðunum og fékk svima. Það er vont en það venst kannski.
Ég rak augun í það á ruv.is að Eimskip tvöfaldaði veltu sína á þriðja ársfjórðungi. Ég tel það öruggt að Gunnar Jónsson á mestan heiður af þessari auknu veltu og finnst viðeigandi að setja inn mynd af Gunnari þar sem það virðist hafa gleymst þegar fréttin var skrifuð. Myndina tók ég þegar ég var í heimsókn hjá Gunnari nú í sumar og hann var í frítíma sínum að skoða líkþorn á rækjum. Þarna fer mikill kennimaður.
Ummæli
Nú vantar mig ykkur félagana það eru nebblega engar gæsir í kistunni minni :(
Vona að þú hafir það gott
koss og knús Solla
Hafðu það sem best og ég hlakka til að heyra í þér.
Saknaðarkveðjur Mamma.