Tveir Bjarnar í steininum

Vegna frétta Morgunblaðsins af tveimur Björnum í steininum í Danmörku (sjá frétt á mbl.is) þá fannst mér það skylda mín að láta vita að ég er en staddur í Noregi. Samt finnst mér það alveg dásamlegt að íslenskir stórglæpamenn skuli vera farnir að sýna heiminum snilli sína á sviði bankarána. Ég held að heimurinn væri öruggari staður ef það væri meira af íslenskum krimmum erlendis.

Annars allt gott að frétta héðan. Fékk peninga í dag og keypti mér prentara og sushi. Fór svo og át ókeypis súpu og hlustaði á kór. Fór svo heim og át snakk og kenndi konu frá Tanzaníu á textavarp. Fór svo að blogga og ætla fljótlega að fara að sofa. En einn viðburðarríkur dagur að kveldi kominn hjá Lögreglustjóraembættinu í Viðey eins og segir í kvæðinu.

Ummæli

JóJó sagði…
Já, þetta var bjarnalegt bankarán.
Bjarni sagði…
Já og þynkan í dómsalnum ennþá bjarnalegri. Tær snilld

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap