Færslur

Trukkurinn að verða klár!

Mynd
Puggurinn að verða ferðaklár. Fyrir skömmu fékk ég í pósti framebag-töskuna á Pugginn, cargo-cages fyrir gafflana og brúsfestingu undir stellið (þið afsakið sletturnar). Síðan var ég að fá staðfestingu á því áðan að stærri stýristaskan, prímusinn ofl. væri komið af stað frá Þýskalandi. Það styttist því verulega í að ég geti farið að taka dagtúra með nesti og kaffi til að prufa hvernig þetta kemur allt út. Nú á ég bara eftir að sjá út hvað ég geri varðandi tjald og svefnpoka en ég er tvístígandi í þeim málum. Það er í öllu falli ljóst að tjaldið sem mig langar í verður ekki til á landinu fyrr en í haust. En ég hef s.s. alveg 3 mánuði til að redda þessu en það væri mjög gott fyrir mig að geta farið fljótlega að taka einnar nætur-túra til að venjast tjaldinu og sjá hvernig dýnan mín kemur út.  Það sem heldur aftur af mér að panta þetta ekki bara allt að utan eru bölvaðir peningarnir. Það gengur ekki of vel hjá mér að vinda ofan af uppsöfnuðum halla. Ég er alltaf með einhvern 100 þúsun...

Sumarið kom og fór

 Það var tiltektar- og skipulags-session hjá mér um helgina. Ég er búinn að vera að taka geymsluna í gegn og henda dóti. Fór með fulla kerru á föstudaginn og þetta er allt farið að líta betur út. Núna á ég bara eftir að fara með dósir og þrífa svalirnar og gluggana, þá er þetta orðið helvíti gott fyrir sumarið. Áðan skrapp ég á bike24 og pantaði mér restina af því sem mig vantar fyrir hjólaferðina, þ.e. fyrir utan einhverjar fatalufsur, svenpoka og tjald. Ég ákvað að klára bara þennan kostnað alveg áður en ég fer að flikka eitthvað upp á ferðahjólið. Ég er jafnvel að spá í hvort ég reyni ekki að láta það bara alveg eiga sig að lappa upp á það þangað til ég kaupi gír-höbbinn. Það er varla að það taki því að skipta út öllum vírum og dóti ef maður er að fara að slíta þetta allt í sundur næsta haust eða vetur. Annars er ekki margt að frétta. Börnin koma í dag og því verður þessi vika að öllum líkindum mjög fljót að líða. Það er s.s. ekkert planað hjá okkur en ætli við kíkjum ekki aðein...

Afmæli Dagbjartar

Mynd
Dabjört að prófa nýja úrið frá frænkunum í sveitinni Hef einhverra hluta vegna ekki komið hér inn vikum saman. Það er samt allt ágætt að frétta en ég hef bara haft öðrum hnöppum að hneppa. Það hefur gengið vel í vinnunni síðsutu 2 vikur, veðrið verið fínt og flest í blóma. Hef reyndar verið í smá meiðslum sem hafa haldið mér frá æfingunum mínum, en það er að birta til í þeim málum. Í dag á Dagbjört afmæli. Guðrún kom hér í morgun og við opnuðum gjafir og borðum amerískar pönnukökur. Ég gaf Dagbjörtu nýtt hjól og svo fékk hún fullt af öðrum góðum gjöfum; úr frá frænkum sínum, strigaskó frá ömmu og afa í sveitinni, Barbie dúkku frá langömmu, Barbie bíl frá mömmu sinni og bræðrum, íþróttatoppa og fullt af fötum. Þórður á líka afmæli í dag og það stefnir í partý í kvöld. Börnin fara því í gistingu til mömmu sinnar en koma aftur til mín á morgun. Ég er búinn að vera að mála aðeins. Tók að mér að mála verk fyrir eina fjölskyldu og það tókst býsna vel. Ég held að þetta hafi komið mér í gang o...

Bylgjan

Mynd
Ég og Lóa á leiðinni til talmeinafræðings í síðustu viku Jæja þá erum við komin rúmlega ár aftur í tímann hvað COVID-aðgerðir snertir. Ég var í vinnunni þegar þetta var gefið út og ég var eiginlega mest hissa hvað ég tók þessu af miklu jafnaðargeði. Ég lifi nú frekar rólegu lífi og hugsaði sem svo að þetta hefði nú ekki mikil áhrif á mig. Svo fattaði ég að ræktin dettur út, ég hætti að komast í sund og svo er ég búinn að vera duglegur að kíkja á kaffihús og bari með vinunum. En maður lifir það af og þetta er kannski leiðinlegast fyrir þá sem standa í einhverjum rekstri og eru með allt í skrúfunni fyrir. Já eða fólk sem líður ekki vel nema það sé innanum annað fólk með allt á út-opnu. Ég er ekki í þeim hópi. En annars er ég búinn að vera með einhvern kvefskít kraumandi í mér í nokkra daga og í dag var mér bent á að ég þyrfti að fara í COVID-test á morgun. Ég fer því ekki í vinnuna, heldur læt troða pinna upp í nefið á mér. Ég reyndar óttast ekkert niðurstöðurnar. Þetta er bara klassísku...

Styttist í afmæli Dagbjartar

Mynd
Trek Precaliber 20" fyrir 5-9 ára. Síðast þegar ég bloggaði þá var helgin þotin hjá, og núna er vinnuvikan líka þotin hjá. Við höfum haft það alveg prýðilegt og það hefur bara verið nokkuð gaman í vinnunni.  Annars bara beisíkk: æfa, læra,elda, laga til og þvo þvott. Ef frá er talin ein sundferð og dýrindis matarboð hjá Davíð og Hönnu Kötu, þá höfum við ekki gert mikið annað.  Ég er búinn að finna hjól fyrir Dagbjörtu í afmælisgjöf. Ég ætla að splæsa í 20“ Trek Precaliber sem hún á að geta notað allavega í 2 sumur. Það kostar nýtt 42 þúsund krónur og við getum ábyggilega selt það á 20 þús eftir 2 ár. Eftir tvær hressilegar flugferðir í fyrrasumar, þá er hún búin að vera mjög smeik að fara niður brekkur og það hefur hamlað okkur þegar við erum að hjóla hérna innanbæjar, t.d. í sund. Á nýja hjólinu eru handbremsur og ég er að vona að hún verði fljót að læra á þær og finni til öryggis. Þegar börnin voru hjá mér síðast lögðum við grunninn að hjólaferð sumarsins. Við ætlum að skell...

Helgin þotin hjá.

Í gær vaknaði ég kl. 05:30 en náði sem betur fer að sofna aftur. Dúraði til klukkan átta, en þá drattaðist ég á fætur, fékk mér að éta og hellti upp á morgunsopann. Lá svo í rúminu til að verða 10, tók þá æfingu og ætlaði því næst að skell mér í sund. Þar var allt stappfullt svo ég skrapp bara í Bónus að kaupa próteinduft og fór svo heim í bað. Eftir hádegi skrapp ég í Bogann og horfði á Brynleif spila einn leik. Þaðan hjólaði ég í bæinn og hitti Hönnu Kötu og Davíð á Bláu könnunni og það var mjög næs. Síðan fór ég heim, át kvöldmat og lá svo bara á sófanum og gerði ekki neitt þar til ég fór að sofa. Ég gerði reyndar lista yfir allt sem ég ætla að taka með mér á hálendið í sumar- en ekki neitt annað sem getur talist gáfulegt. Í morgun var ég aftur vaknaður klukkan átta. Ég er eitthvað aðeins búinn að eiga erfiðara með svefn þessa síðustu viku miðað við venjulega. Ég veit ekki alveg hvað það er, en það er heldur ekkert búið að vera allt of létt yfir mér. Ekkert alvarlegt, bara einhver s...

Föstudagskvöld

Mynd
Einhver gömul skissa sem ég fann Það er föstudagskvöld og ég sit fyrir framan sjónvarpið með Gísla Martein í gangi og er að leggja Solitaire Online kapal. Það eina sem gæti gert þetta sorglegra væri að ég væri að drekka rauðvín og borða eðlu. En ég er blessunarlega ekki búinn að bragða áfengi í bráðum 15 ár og er hættur að nasla á kvöldin!!! Ég hugsa ekki oft út í að ég sé búinn að vera edrú í 15 ár en ætti nú sennilega bara að vera nokkuð stoltur af mér. Í vikunni fékk ég verkefni, þ.e. að mála mynd fyrir stórafmæli. Fyrir misskilning hélt ég að ég hefði 2 mánuði, en ég hafði bara 2 daga. Myndefnið var snúið, ég fór næstum úr límingunum og varð á endanum að gefa það frá mér. Öllu heldur, ég kem myndinni ekki frá mér á tilsettum tíma. En það kom eitthvað gott út úr þessu; ég tók til á vinnuborðinu og byrjaði eitthvað að mála og skissa. Það var næs að ná smá sköpun í gang og vonandi ýtir þetta mér af stað fyrir alvöru. En þetta var heldur ekki öll sköpun vikunnar því ég fléttaði mér lík...