Föstudagskvöld
Einhver gömul skissa sem ég fann |
Það er föstudagskvöld og ég sit fyrir framan sjónvarpið með Gísla Martein í gangi og er að leggja Solitaire Online kapal. Það eina sem gæti gert þetta sorglegra væri að ég væri að drekka rauðvín og borða eðlu. En ég er blessunarlega ekki búinn að bragða áfengi í bráðum 15 ár og er hættur að nasla á kvöldin!!! Ég hugsa ekki oft út í að ég sé búinn að vera edrú í 15 ár en ætti nú sennilega bara að vera nokkuð stoltur af mér.
Í vikunni fékk ég verkefni, þ.e. að mála mynd fyrir stórafmæli. Fyrir misskilning hélt ég að ég hefði 2 mánuði, en ég hafði bara 2 daga. Myndefnið var snúið, ég fór næstum úr límingunum og varð á endanum að gefa það frá mér. Öllu heldur, ég kem myndinni ekki frá mér á tilsettum tíma.
En það kom eitthvað gott út úr þessu; ég tók til á vinnuborðinu og byrjaði eitthvað að mála og skissa. Það var næs að ná smá sköpun í gang og vonandi ýtir þetta mér af stað fyrir alvöru. En þetta var heldur ekki öll sköpun vikunnar því ég fléttaði mér líka forláta blómahengi fyrir gangandi gyðinginn minn sem hangir nú á stofuveggnum. Ég ætla að flétta fleiri og taka afleggjara af mánagullinu mínu og hengja upp, bæði í stofunni og svefnherberginu.
Helgin er annars ekki mikið plönuð. Á morgun ætla ég að kíkja á Goðamótið og sjá Brynleif keppa. Hann var að keppa í dag og skoraði mark. Pabbinn rosa stoltur. Svo kannski skellir maður sér í sund og svo er ég að spá í að ganga á Súlur á sunnudaginn ef veður leyfir. Annars bara heimaæfingar og ódýr og hollur matur.
Góða helgi!
Ummæli