Helgin þotin hjá.
Í gær vaknaði ég kl. 05:30 en náði sem betur fer að sofna aftur. Dúraði til klukkan átta, en þá drattaðist ég á fætur, fékk mér að éta og hellti upp á morgunsopann. Lá svo í rúminu til að verða 10, tók þá æfingu og ætlaði því næst að skell mér í sund. Þar var allt stappfullt svo ég skrapp bara í Bónus að kaupa próteinduft og fór svo heim í bað.
Eftir hádegi skrapp ég í Bogann og horfði á Brynleif spila einn leik. Þaðan hjólaði ég í bæinn og hitti Hönnu Kötu og Davíð á Bláu könnunni og það var mjög næs. Síðan fór ég heim, át kvöldmat og lá svo bara á sófanum og gerði ekki neitt þar til ég fór að sofa. Ég gerði reyndar lista yfir allt sem ég ætla að taka með mér á hálendið í sumar- en ekki neitt annað sem getur talist gáfulegt.
Í morgun var ég aftur vaknaður klukkan átta. Ég er eitthvað aðeins búinn að eiga erfiðara með svefn þessa síðustu viku miðað við venjulega. Ég veit ekki alveg hvað það er, en það er heldur ekkert búið að vera allt of létt yfir mér. Ekkert alvarlegt, bara einhver síðvetrarmygla. En já, ég lá svo í rúminu til rúmlega 10, drakk kaffi og las fréttir.
Næst var það daglega æfingarútínan, hádegismatur og bað. Síðan fór ég í bogann og kíkti á einn leik og hjólaði svo á Bláu könnuna. Þar drakk ég kaffi og skipulagði máltíðir vikunnar. Skrifaði lista og skellti mér svo í smá hjólatúr í góða veðrinu. Fór með rusl í endurvinnslugáma þegar ég kom heim, keypti inn og eldaði svo indverskan grænmetisrétt með kjúklingabaunum.
Kjötfastan mín er en í fullum gangi, ef frá eru talin 4 skipti sem mér hefur verið boðið í mat. Mér finnst þetta helvíti fínt og sakna þess ekki mikið að éta ekki kjöt. En það kemur alveg að því að mann langi í góða steik eða gæsaborgara sem leynast í kistunni.
Ummæli