Styttist í afmæli Dagbjartar

Trek Precaliber 20" fyrir 5-9 ára.

Síðast þegar ég bloggaði þá var helgin þotin hjá, og núna er vinnuvikan líka þotin hjá. Við höfum haft það alveg prýðilegt og það hefur bara verið nokkuð gaman í vinnunni.  Annars bara beisíkk: æfa, læra,elda, laga til og þvo þvott. Ef frá er talin ein sundferð og dýrindis matarboð hjá Davíð og Hönnu Kötu, þá höfum við ekki gert mikið annað. 

Ég er búinn að finna hjól fyrir Dagbjörtu í afmælisgjöf. Ég ætla að splæsa í 20“ Trek Precaliber sem hún á að geta notað allavega í 2 sumur. Það kostar nýtt 42 þúsund krónur og við getum ábyggilega selt það á 20 þús eftir 2 ár. Eftir tvær hressilegar flugferðir í fyrrasumar, þá er hún búin að vera mjög smeik að fara niður brekkur og það hefur hamlað okkur þegar við erum að hjóla hérna innanbæjar, t.d. í sund. Á nýja hjólinu eru handbremsur og ég er að vona að hún verði fljót að læra á þær og finni til öryggis.

Þegar börnin voru hjá mér síðast lögðum við grunninn að hjólaferð sumarsins. Við ætlum að skella okkur í Flateyjardal. Frá afleggjaranum í Dalsmynni eru 29 km og því þurfum við ábyggilega að tjalda á miðri leið og hjóla svo restina daginn eftir. Síðan munum við gista eina nótt en svo ætla ég að freista þess að hjóla alla leiðina til baka í einum rykk en það er alveg á mörkunum að það sé hægt að bjóða 6 ára upp á það. 

Í síðustu viku tók ég fyrsta áfangann í að versla græjur og dót fyrir sumarið. Með hjólinu hennar Lóu er ég búinn að kljúfa ca. 80% af kostnaðinum sem ég ætla að leggja í þetta. Tjald og svefnpoki er það dýrasta sem er eftir en það mun kosta hátt í 200 þúsund krónur. En þetta á allt að sleppa því þegar ég er búinn að taka barnabætur og endurgreiðslu frá skattinum, þá lítur dæmið ágætlega út.

Ég er búinn að vera í sparnaði þennan mánuð án þess þó að vera neitt að lifa eins og gyðingur. Mér reiknast til í fljótu bragði að ég sé búinn að eyða ca. 3000 kr/dag sem er sjálfsagt ágætt þar sem börnin eru búin að vera hjá mér í 2 vikur. En mér er búið að finnast þetta gaman og ég ætla að halda þessu áfram.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap