Mótíf. Bitch be cool- endaði eins og síðast þrátt fyrir einbeittan vilja að gera hana öðruvísi. Jæja hún er mun betri en samt ekki alveg það sem ég óskaði mér
Ákvað að spreyta mig á Kverkfjöllum. Þarna uppi á hömrunum hægra megin hef ég staðið. Það var einhver magnaðasta sýn sem ég hef upplifað. Ég exekjúta þetta verkefni á morgun með annari mynd.
Ég er ánægðari með þessa en síðustu. Þarf samt aðeins að melta þetta og skoða hvort ég breyti eitthvað samsetningunni og máli aftur. Mér finnst vanta eitthvað loka töts en það er eitthvað við hana- einhver mistík í fjallinu.
Þessi nalli tók langan tíma. Fyrst leist mér rosalega vel á hana- síðan ekki. Svo var ég ekki viss..... en núna---- daginn eftir, er ég orðinn viss um að mér finnst hún ljót.
Það er að mörgu leiti ágætis fílingur í þessari mynd. Maður hefur upplifað nokkra svona morgna suður á bæjum í gæsaveiði, þegar Krákáin liðast lygn og tær í gegnum haustlitadýrðina. Gæsir garga í fjarska og maður undrast það hvað helvítis vargurinn ætlar að vera lífseigur.
Gerði þessar 2 í dag. Báðar eru á Waterford Rough pappír sem er svolítið öðruvísi að vinna á heldur en pappírinn sem ég hef verið að nota. Ég er nokkuð ánægður með Kinnarfjöllin en gerði ein alveg skelfileg mistök með Land Roverinn. Ég leyfi ykkur að finna út hvað það er.