Færslur

Það er alltaf að verða óljósari línan milli fjölskyldu og skóla. Kynslóðin sem nú á börn í leikskóla, kynslóðin sem sumir segja að sé svo góðu vön að hún vilji láta færa sér smurt í rúmið, vill líka að uppeldisstofnanir taki af þeim ómakið við að gefa börnunum morgunmat áður en þau fara á leikskólann á morgnana. Skiptir þá engu þó skera þurfi niður eitthvað annað í staðinn. Að skemmtilegra hjali. Brynleifur fór í ástandsskoðun í morgun og fékk topp einkunn. Hann þyngist um rúm 170g á viku núna og er orðinn 5920g og svo lengist hann heil ósköp. Hann fæddist 53cm en er nú orðinn 63cm. Alveg magnað.  Í gær fórum við Guðrún og Brynleifur á jólatónleika hjá Kammerkór Skagafjarðar í Hóladómkirkju. Brynleifur fílaði þetta ágætlega og var eins og sólin allan tíman. Fór út að hjóla áðan. Þvílík snilld. Líkaminn er að venjast þessu og óæðri endinn þolir æ fleiri km á þessum örmjóa keppnishnakk. Maður reynir að verja sig með hjólanærbuxum sem eru með púðum og þetta fer allt að koma. Hjó...

Jólastemmning í Skaffó

Brynleifur og pabbi að hlusta á Karlakórinn heimi Langaði að prófa þennan videó-fítus hérna á blogginu . Fórum í Skaffó í dag, þar ríkti jólastemmningin heilög og majoneskennd.  Karlakórinn Heimir er yfirleitt ótrúlega magnaður

Aumur í rassi

Mynd
Kría hjól er öðruvísi reiðhjólaverslun. Í sýningarsalnum er að finna sérsmíðuð hjól, ný hjól, gamlan sófa og eiturgult gólf. Emil afgreiðslumaður er á verkstæðinu í næsta herbergi, með sítt hár og skegg, klæddur grænni þykkri peysu með stórum kraga, þröngum svörtum gallabuxum og kúrekastígvélum. Ef við steríótýpum hann er hann á leiðinni á svið með einhverri rokkhljómsveit  frekar en að fara að setja saman hjólið mitt. Ég kann strax vel við mig í þessari búð. Hjá Kría hjól Það tekur smá tíma að setja hjólið mitt saman og á meðan geng ég um og skoða, vel mér skó, hjálm og allt það helsta sem maður þarf í hina þungu skagfirsku umferð. Á meðan koma í búðina einhverjir strákar að spjalla við Emil, kíkja í bækur og skoða myndbönd í tölvunni hjá honum. Ræða um hjólatúra sumarsins og hvert eigi að fara næsta sumar. Ég er með hálfgerða minnimáttarkennd, veit lítið um hjól og renni blint í sjóinn með þetta allt. Kona kemur að ná í gamalt fjallahjól sem nú er komið á nagladekk. Hún b...

Rusleyjan

Kerfisbundið göngum við svo hratt á auðlindi jarðar að það lítur allt út fyrir að við séum að steypa komandi kynslóðum í glötun. Þ.e ef við snúum ekki við blaðinu mjög fljótlega. Þetta eru staðreyndir sem blasa við en enginn nennir/þorir að horfast í augu við. Maður er ekkert betri sjálfur og kæfir jólaandann með plastpoka sem endar svo á botni allsnæktargryfjunnar við Sölvabakka. Gleðileg ruslajól. Talandi um neyslu. Ég var að fá nýtt Visakort fyrir mánuði síðan en nú stórsér á því. Tökum á því seinna. Brynleifur var að byrja að velta sér áðan. Stórkostlegt að fylgjast með þessu öllu. Þetta er lífið, ekki eitthvað rusl. Kveðja, Bjarni
Mynd
Með pabba á Hótel KEA Jæja þá erum við familían mætt í Mývatnssveitina. Pökkuðum öllu í bílinn eftir vinnu í gær og brunuðum í frosti og kófi til fyrirheitnalands jólanna. Í dag verður farið að hitta jólasveinana í  Dimmuborgum og síðan er stefnan tekin á Jarðböðin þar sem verður jólamarkaður. Þangað mæta svo líka jólasveinarnir til þess að baða sig. Við erum semsagt að fara að baða okkur með jólasveinunum. Þvílikt fjör. Fór í ræktina hérna uppi í sundlaug áðan. Hljóp 5km (hálfgert tempóhlaup) og síðan lyfti ég á eftir. Ég er ekki viss um að fólk hérna í sveitinni átti sig á því hvílík snilld þessi salur er. Þarna er gott hlaupabretti og öll þau lóð og tæki  sem hugsast getur. Tækin þarna inni eru heldur ekkert slor. Þetta eru græjur  frá TechnoGym og ég væri ekki hissa þau myndu kosta um eða yfir 6 millur í dag. Eftir meira en 10 ára notkun sér ekki á þeim enda Mývetningar ekkert að þjösnast á þessu dóti. Er að hlaða niður myndum frá Agli úr nafnaveislunni...

Nafnaveisla og jólaæði

Mynd
Í "skírnar"- gallanum sem Hildur frænka í Singapore gaf Ef það væri ekki fyrir þrýsting frá móður minni þá myndi ég sjálfsagt ekki vera svona duglegur að setja inn myndir. Ég bætti við myndum úr laufabrauðsskurði inn í albúmið Meira fyrir ömmur og afa og svo bjó ég til nýtt albúm sem heitir Nafnaveisla . Ég veit ekki hvort ég geti kennt eigin klaufaskap um, eða hvort myndavélin sé ekki alveg rétta græjan í svona veislumyndatökur. Myndirnar eru allavega ekki góðar og ég þarf að fá myndir hjá þeim sem voru duglegri við að mynda. Maður ætti kannski að biðja Guðrúnar og vona að góðhjartaðir einstaklingar myndu gefa okkur myndavél. Annars gengur þetta sinn vanagang, hvað er að frétta? Ræs kl. 06:45 og svo er þetta svona nokkuð samfelld froða fram yfir náttmál. Ég er ekkert að kvarta en nú þegar jólastússið bætis við fer að verða erfiðara að koma æfingum fyrir inn í planið. Þá er nú gott að eiga svona skilningsríka og yndislega kærustu. Annars er þetta grimmdarfrost...

Erlendar fjárfestingar

Mynd
Jæja þá erum við komin aftur frá Akureyri, úttauguð, með ofbirtu í augunum, hellu í eyrunum og illt í veskinu. Kannski smá ýkjur. Annar var þetta fínt bara og orðið jólalegt á Akureyri. Gistum á Hótel KEA og Brynleifur fékk að hitta Sigtrygg vin sinn (son Emmu og Kjartans). Við erum þó allavega búin að kaupa allar jólagjafirnar í ár og allir skápar troðfullir af möndlum, hnetum og sykri. Ég er búinn að komast að því að Íslendingar hafa ekki þroska til að nota kommentakerfi á fjölmiðlasíðum. Það er svo mikil reiði og rugl sem flæðir um þetta dót að það væri hægt að nota þetta við að ráðast inn í Íran. Hvað er hægt að teygja málfrelsishugtakið langt? Vonandi gefur þetta ekki rétta mynd af fólkinu í landinu, annars erum við í djúpum skít. Ætlaði að skrifa hér langan pistil um erlenda fjárfestingu en strokaði hann út aftur. Þetta kom út eins og ég væri rasisti bara af því að ég fæ kjánahroll af því að sjá þegar fólk hendir sér grenjandi á hnéin þegar það heyrir um erlent fjármagn. S...