Nafnaveisla og jólaæði

Í "skírnar"- gallanum sem Hildur frænka í Singapore gaf

Ef það væri ekki fyrir þrýsting frá móður minni þá myndi ég sjálfsagt ekki vera svona duglegur að setja inn myndir. Ég bætti við myndum úr laufabrauðsskurði inn í albúmið Meira fyrir ömmur og afa og svo bjó ég til nýtt albúm sem heitir Nafnaveisla. Ég veit ekki hvort ég geti kennt eigin klaufaskap um, eða hvort myndavélin sé ekki alveg rétta græjan í svona veislumyndatökur. Myndirnar eru allavega ekki góðar og ég þarf að fá myndir hjá þeim sem voru duglegri við að mynda. Maður ætti kannski að biðja Guðrúnar og vona að góðhjartaðir einstaklingar myndu gefa okkur myndavél.

Annars gengur þetta sinn vanagang, hvað er að frétta? Ræs kl. 06:45 og svo er þetta svona nokkuð samfelld froða fram yfir náttmál. Ég er ekkert að kvarta en nú þegar jólastússið bætis við fer að verða erfiðara að koma æfingum fyrir inn í planið. Þá er nú gott að eiga svona skilningsríka og yndislega kærustu.

Annars er þetta grimmdarfrost að gera það að verkum að maður er ekki að hlaupa mikið. Fór í sund áðan og gerði TI æfingar. Þetta sund er ekki alveg að ganga upp hjá  mér og það er auðvelt að falla í einhverja helvítis sjálfsvorkun. Maður er bara svo djöfulli óþolinmóður. Ég vil árangur strax!!!
 

Eins og ég kom að í einhverjum pósti þá lét ég undan eigin þrýstingi og pantaði mér hjól á Kría Cycles í Reykjavík. Hjólið heitir Specialized Crux Elite og er svokallað cyclocross hjól. Ég á að geta notað þetta allt árið og það þykir fínt í vetraræfingar. Ég lagði inn pöntun fyrir nagladekkjum, ljósum og öllum. Best að vera vel búinn þegar maður dettur og meiðir sig. Jæja þetta er gott í bili.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði