Aumur í rassi

Kría hjól er öðruvísi reiðhjólaverslun. Í sýningarsalnum er að finna sérsmíðuð hjól, ný hjól, gamlan sófa og eiturgult gólf. Emil afgreiðslumaður er á verkstæðinu í næsta herbergi, með sítt hár og skegg, klæddur grænni þykkri peysu með stórum kraga, þröngum svörtum gallabuxum og kúrekastígvélum. Ef við steríótýpum hann er hann á leiðinni á svið með einhverri rokkhljómsveit  frekar en að fara að setja saman hjólið mitt. Ég kann strax vel við mig í þessari búð.

Hjá Kría hjól
Það tekur smá tíma að setja hjólið mitt saman og á meðan geng ég um og skoða, vel mér skó, hjálm og allt það helsta sem maður þarf í hina þungu skagfirsku umferð. Á meðan koma í búðina einhverjir strákar að spjalla við Emil, kíkja í bækur og skoða myndbönd í tölvunni hjá honum. Ræða um hjólatúra sumarsins og hvert eigi að fara næsta sumar. Ég er með hálfgerða minnimáttarkennd, veit lítið um hjól og renni blint í sjóinn með þetta allt. Kona kemur að ná í gamalt fjallahjól sem nú er komið á nagladekk. Hún borgar og brosir út að eyrum þegar hún teymir hjólið út í veturinn. Önnur kona kemur inn, hún lenti í vandræðum með gírana á sínu hjóli. Emil er einn að vinna núna og þarf því að hætta að vinna í hjólinu mínu á meðan hann afgreiðir aðra viskiptavini en mér er alveg sama. Mér liggur ekkert á og tíminn gengur hægar þarna inni. Ekkert stress. Hann reddar gírunum fyrir konuna á augabragði og snýr sér aftr að mínu hjóli.

Emil að ganga frá pappírum
Eftir ca. einn og hálfan tíma er ég kominn út í bíl með fullt af dóti. Hjólið, skór, hjálmur, pedalar, pumpa, auka slanga og brúsahaldara. Og þrælnelgdur að sjálfsögðu. Þetta er skrýtið, þegar maður kemur fyrst inn finnst manni eins og ekkert sé til þarna en síðan dregur Emil vörur úr öllum skúffum og skúmaskotum og raðar saman í fínan pakka. Þeir eru ekki með stóran lager en þeir redda því sem mann vantar. Topp þjónusta.
Hjólið, komið á naglana
Ég ætla við tækifæri að skrifa góðan pistil um nýja hjólið, taka myndir og birta hérna í græjuhorninu. Ég er ekki búinn að stúdera þetta nóg ennþá til að geta skrifað eitthvað af viti. Fór reynda í dag og ætlaði bara að prófa einn hring hérna í götunni. Endaði svo með því að fara á pósthúsið, út í Ver og út á Eyri. Þetta voru einhverjir 9 km. Þetta gekk alveg ótrúlega vel miðað við mikinn snjó og hálku og maður datt ekki einu sinni. Eina sem maður finnur fyrir eru smá eymsli í rassinum eftir  hnakkinn. Maður getur orðið aumur í rassinum eftir ýmislegt fleira en að versla við kaupfélagið.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

jonrh sagði…
Er þetta Specialized Crux 2012?
Nafnlaus sagði…
rétt hjá þér jón - cyclocross elite - alveg yndislegt hjól

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði