Skánskur gæsamorgun sem ég fór aldrei. Krassblað - enda útkoman ágæt, sem er typískt. Reyndi að ná fram vetrar og kuldastemmningu með cadmium- gulum himni. Held það hafi heppnast ágætlega
Það er margfalt auðveldara að mála eftir öðru málverki en ljósmynd. Sennilega er það mesta æfingin, að einfalda. Þetta er gert í flýti á ódýran skissupappír og lítur ágætlega út. Formyndin er eftir breska vatnslita- imlressionistann Edward Wesson.
Útsýnið í morgun á krotpappír. Munurinn á skissu og málverki er ekki alltaf greinilegur. Þetta er þó skissa, enda pappírinn mjög ódýr og lélegur. Það sér maður þegar maður er með myndina fyrir framan sig. Það er samt oft svo gott að fría sig aðeins upp og bara krota eins og maður eigi lífið að leysa. Þá verður allt svo smooth. Málaði myndina svo eftir að það var komið myrkur og mundi þá ekki hvort þakið hjá Steinda væri hvítt eða svart? Valdi vitlausan lit. Sumir segja að maður hafi ekki séð heiminn fyrr en maður byrjar að mála. Það er nokkuð til í því. Hvað eru t.d margir gluggar á framhlið hússins sem þú ert í? Hvernig er þakskegggið á litin? Hvað eru margir gluggar á hliðinni á Reykjahlíðarkirkju eða á húsinu hjá ömmu þinni?
Það er merkilegt, að eftir 250 skissur, málverk og teikningar, þá er ég aðeins ánægður með c.a 2 málverk og 1 blýantsteikningu. Þetta er hinsvegar undirbúningur fyrir málverk sem ég er með í vinnslu- sem verður vonandi 3. málverkið sem ég verð ánægður með.
Himinn sem sést mjög illa á þessari mynd en er vel heppnaður þegar maður er með hann fyrir framan sig. Ekki mjög afgerandi og því þarf ég að mála eitthvað beitt og sterkt undir hann. Hann mun ekki stela neinu þessi himinn. Síðan er það varðarrýmið í vinnunni krotað í skissubók. Ég er að drepast úr sköpunargleði þessa dagana- hreinlega alveg að springa. Það líður kannski hjá, hver veit. Ókláruð málverk í vinnuherberginu kalla á mig allan daginn. Sjálfsagt væri þetta ekki svona skemmtilegt ef maður ynni við þetta.