109

Útsýnið í morgun á krotpappír. Munurinn á skissu og málverki er ekki alltaf greinilegur. Þetta er þó skissa, enda pappírinn mjög ódýr og lélegur. Það sér maður þegar maður er með myndina fyrir framan sig. Það er samt oft svo gott að fría sig aðeins upp og bara krota eins og maður eigi lífið að leysa. Þá verður allt svo smooth. Málaði myndina svo eftir að það var komið myrkur og mundi þá ekki hvort þakið hjá Steinda væri hvítt eða svart? Valdi vitlausan lit.

Sumir segja að maður hafi ekki séð heiminn fyrr en maður byrjar að mála. Það er nokkuð til í því. Hvað eru t.d margir gluggar á framhlið hússins sem þú ert í? Hvernig er þakskegggið á litin? Hvað eru margir gluggar á hliðinni á Reykjahlíðarkirkju eða á húsinu hjá ömmu þinni?

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap