123
Himinn sem sést mjög illa á þessari mynd en er vel heppnaður þegar maður er með hann fyrir framan sig. Ekki mjög afgerandi og því þarf ég að mála eitthvað beitt og sterkt undir hann. Hann mun ekki stela neinu þessi himinn. Síðan er það varðarrýmið í vinnunni krotað í skissubók.
Ég er að drepast úr sköpunargleði þessa dagana- hreinlega alveg að springa. Það líður kannski hjá, hver veit. Ókláruð málverk í vinnuherberginu kalla á mig allan daginn. Sjálfsagt væri þetta ekki svona skemmtilegt ef maður ynni við þetta.
Ummæli