Færslur

Reynihlíð

Mynd
Ég væri nú ekki hissa þó fólk væri búið að gefast upp á að kíkja í heimsókn hingað. Byrjaði að mála aðeins aftur enda einhver verkefni farin að safnast upp. Ágætis mynd af Reynihlíð. Himinn góður allavega.

Af listum og öðru tengdu jafnt sem ótengdu

Mynd
Ég er byrjaður að mála aftur- það er gott. Það sem þurfti til var ein pöntun á mynd og ég neyddist til að taka upp penslana aftur. Ég málaði nokkuð mikið í gær og hefði s.s. alveg getað haldið áfram þegar ég fór í bælið. Síðustu 2 vikur höfum við verið mikið á þvælingi. Séð eitt og annað, fengið í okkur gróðurhúsayl, fersk ber og sunnlenska víðáttu. Keramik og súrdeigsskonsur. Svona upplifanir veita manni mikinn innblástur. Innblástur til að gera eitthvað sem maður veit ekki hvað er. Svo hefst leitin. Það eru hræringar í gangi. Það eru breytingar í kortunum. Ég finna það. Kveðja, Bjarni

Liverpool

Ég hef gert samning við Liverpool fyrir næsta tímabil. Því verður ekki hægt að bjóða mér í jólaboð þar sem mikið er um knattspyrnuleiki á Englandi yfir hátíðirnar. Ég mun fljótlega setja hér inn upplsýingar um breytt heimilsfang.

Í virðingarskyni..

....við þig kæri lesandi sem heimsækir mig allt að því á hverjum degi, þá ætla ég að setja hér inn fjögur orð. Áfram Ísland Áfram Ísland

Skrifa

Sit hér heima í stofu eftir annasaman en góðan dag. Ég er tæknilega séð í sumarfríi en hef verið að vinna verkefni fyrir MýSköpun. Við erum að berjast í því að skipuleggja ræktun á þörungum í nokkuð stórum skala og það er bara ljómandi áhugavert. Ég sé fyrir mér að vera í þessu allavega næstu 2-3 mánuði en svo kemur í ljós með haustinu hvað ég mun taka mér fyrir hendur. Það hentar mér rosalega vel að vera í svona tímabundnum verkefnum og þannig held ég mér vel við efnið. Bara það að vita að þetta sé tímabundið og eitthvað spennandi gæti verið handan við hornið fríar hugann. Mörgum finnst hryllilegt að hafa ekki allt niðurneglt til langs tíma. Hjá mér er það öfugt. Ég mála ekkert þessa dagana. Tók mig til fyrir 2 vikum og málaði eitthvað smá en lagði svo penslana á hilluna strax aftur. Þegar dagur er að kvöldi kominn þessa dagana er ég bara búinn að skrifa og pæla svo mikið að ég á ekkert eftir í málningarvinnuna. Sköpunin búin. Skúra á daginn, mála á kvöldin. Skrifa á daginn, sjónv...

Aumingja Hafsteinn

Það var hrikalegt áfall fyrir Hafstein og fjölskyldu hans þegar hann greindist með bráðaofnæmi fyrir steinselju. Hann var fyrirvinnan á heimilinu en varð nú að segja upp starfi sínu sem framkvæmdarstjóri hjá fyrirtækinu Granít og legsteinum.

Gunnlaugur eldtunga

Hann Gunnlaugur hafði reykt heil ósköp síðan hann var ungur maður. Einn til þrjá pakka af túttulausum Camel á dag, allt eftir því hvað hann hafði fyrir stafni. Þetta virtist ekki hafa mikil áhrif á heilsuna framan af, en síðan fór að draga af honum með árunum. Eftir sextugt hrakaði heilsunni svo hratt- og að lokum var orðið of seint að snúa þessari óheillaþróun við. Lungnaþemban var staðreynd og að lokum dó hann á Vífilsstöðum þrátt fyrir að hafa verið búinn að fjárfesta í rándýrum öndunarvöðlum.