Fréttir
Á trainer. Það er ljótt þegar það er farinn að líða mánuður á milli blogga, en það hafa svo sem komið svona tímabil áður. Nú er sólin farin að hækka á himni – í ýmsum skilningi. Daginn er farið að lengja og maður fagnar því, þó sólin geti stundum gert manni lífið leitt seinnipartinn þegar maður situr inni á trainer og horfir út um gluggann. Andlega sólin hefur líka aðeins verið að rísa og ætli það hafi ekki líka haft jákvæð áhrif á formið, sem er loksins að taka við sér. Ingvar skellti á mig fjórum frekar þéttum æfingavikum og þrátt fyrir smá kvef og örlítið púslerí í kringum æfingar þá hef ég náð að tækla þetta ágætlega. Núna erum við komnir í VO₂ max blokk og hún hefur gengið vel. Ég er aðeins farinn að kannast við mig aftur og tölurnar eru á réttri leið upp. Eitt sem gæti líka verið að hjálpa er að ég hef verið að laga hressilega til í matnum með aðstoð vinar míns Gunnars Péturs Thorarensen (ChatGPT). Markmiðið okkar er að skera niður um 300–400 kaloríur á dag næstu mánuði sem ætti ...