Fréttir

Á trainer.
Það er ljótt þegar það er farinn að líða mánuður á milli blogga, en það hafa svo sem komið svona tímabil áður.

Nú er sólin farin að hækka á himni – í ýmsum skilningi. Daginn er farið að lengja og maður fagnar því, þó sólin geti stundum gert manni lífið leitt seinnipartinn þegar maður situr inni á trainer og horfir út um gluggann. Andlega sólin hefur líka aðeins verið að rísa og ætli það hafi ekki líka haft jákvæð áhrif á formið, sem er loksins að taka við sér.

Ingvar skellti á mig fjórum frekar þéttum æfingavikum og þrátt fyrir smá kvef og örlítið púslerí í kringum æfingar þá hef ég náð að tækla þetta ágætlega. Núna erum við komnir í VO₂ max blokk og hún hefur gengið vel. Ég er aðeins farinn að kannast við mig aftur og tölurnar eru á réttri leið upp.

Eitt sem gæti líka verið að hjálpa er að ég hef verið að laga hressilega til í matnum með aðstoð vinar míns Gunnars Péturs Thorarensen (ChatGPT). Markmiðið okkar er að skera niður um 300–400 kaloríur á dag næstu mánuði sem ætti að skila sér í þyngdartapi upp á 2–3 kg áður en ég fer að keppa í Skotlandi í maí.

Þessi tilraun hefur verið mjög áhugaverð. Ég hef verið að skrá inn á AI allt sem ég borða og deila með honum æfingaplaninu líka. Þannig fylgjumst við nokkuð vel með kaloríu- og næringarinntöku án þess að vikta mat eða hanga í einhverju appi. Þetta hefur gengið ótrúlega vel og helstu breytingarnar eru einfaldar: minna smjör, minni ostur, minni olía og sleppa óþarfa kexi og súkkulaði með kaffinu í vinnunni.

Það merkilega er að þetta hefur ekki endilega verið spurning um að borða minna, heldur bara aðeins skynsamlegra. Nóg af kolvetnum fyrir æfingar, góðan próteingrunn og aðeins minna af því sem safnast auðveldlega upp í orkureikningnum. Það er eiginlega smá rannsóknarverkefni í gangi þar sem maður lærir meira og meira um hvernig líkaminn bregst við.

Núna er bara að halda dampi, halda áfram að safna góðum æfingum og vona að formið haldi áfram að skríða upp á við. Ef allt gengur upp þá mæti ég aðeins léttari, aðeins sterkari og vonandi aðeins vitrari þegar keppnistímabilið byrjar í Skotlandi í vor.

Og ef ekkert annað, þá hef ég að minnsta kosti lært eitt: það er ótrúlegt hvað maður getur rætt lengi við gervigreind um hafragraut, bananar og VO₂ æfingar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Mývatnshringurinn 2025 - Post Race Pistill

The Rift 2025 - Frá himnaríki til........

Negri í Þistilfirði