Garmin Venu 4

Garmin Venu 4

Þegar ég varð fertugur árið 2017 gáfu pabbi og Hafrún mér iWatch 3 sem var í rauninni snilldargræja. Það sem stóð upp úr var tengingin við Apple-umhverfið, sem maður er náttúrulega hálfpartinn læstur í. Hún aflæsti t.d. fartölvunni þegar ég opnaði hana og talaði auðveldlega við öll öpp sem ég er með uppsett.

Stærsti gallinn var hins vegar hvað batteríið entist stutt. Ég svaf því aldrei með það og þurfti alltaf að taka með hleðslutæki í ferðalög. Með tímanum varð púlsmælingin líka aðeins óstöðug og datt stundum út þegar ég var að hlaupa. En þrátt fyrir það stóð græjan fyrir sínu og er enn í ágætis lagi, átta árum síðar.

Mig hefur samt lengi langað í úr sem er sérhæfðara heilsu- og íþróttaúr, með meiri áherslu á mælingar eins og HRV, svefn og endurheimt. Þar sem ég er nú þegar með Garmin hjólatölvu og nota Garmin Connect, þá lá beinast við að færa mig yfir í Garmin. Það var samt ekki fyrr en í nóvember sem ég lét verða af því og keypti mér Venu 4, sem er frekar einföld og hagkvæm týpa miðað við dýrari Garmin úr.

Af hverju Venu 4?

  • Gott verð
  • Nett og létt
  • Sömu HR og HRV mælingar og í dýrari úrum
  • Svefnmælingar
  • Body Battery / stress
  • Training readiness
  • Góð rafhlöðuending
  • Garmin Connect umhverfið

Ég hefði auðveldlega getað farið í dýrara úr með alls konar æfingafítusum, kortum og fleira “aukadóti”. En það var ekki það sem ég var að leita að. Markmiðið var einfalt: fylgjast betur með hjartanu, svefni og endurheimt- og svo auðvitað að geta farið út að ganga og hlaupa.


Garmin INDEX S2.

Stóri dómur og Garmin Index S2

Ég ætla ekki að eyða miklum tíma í að skrifa ítarlega umsögn um úrið, en í stuttu máli hefur úrið uppfyllt allar þær kröfur sem ég gerði til þess. Eini gallinn sem ég hef rekist á er að ég get fengið smá útbrot undir ólinni þegar ég svitna, en það lagaðist strax þegar ég skipti yfir í nælonól sem mér finnst líka mun þægilegri.

Það hefur verið bæði forvitnilegt og lærdómsríkt að fylgjast með helstu mælingunum dag frá degi. Sérstaklega finnst mér áhugavert að fylgjast með HRV á morgnana – hvernig líkaminn “skilar stöðunni” eftir nóttina. Maður sér mjög skýrt hvernig þættir eins og svefn, álag, kvef eða bara andlegt stress hafa bein áhrif á tölurnar. Sumir dagar byrja með grænu ljósi og maður finnur að líkaminn er tilbúinn í álag. Aðra daga er merkið skýrara: taka því rólega.

Þetta hefur hjálpað mér að hugsa aðeins öðruvísi um æfingar- ekki bara hvað stendur á planinu, heldur líka hvernig líkaminn er í raun og veru að svara. Það þýðir samt ekki að maður þurfi að lifa eftir þessu heldur bara að láta þetta hjálpa sér að sjá munstur og hlusta á líkamann. Ef manni líður vel þá hefur það meira að segja en tölurnar.

Ég er líka nýlega búinn að bæta við Garmin Index S2 vikt sem tengist beint inn í Connect. Það verður áhugavert að sjá hvernig það spilar inn í heildarmyndina – og ég mun klárlega segja betur frá því þegar ég er kominn með meiri reynslu.

Það eru líka góðar fréttir af “missioninu” að létta mig aðeins, sem ég er að vinna í með smá hjálp frá ChatGPT. Meira um það síðar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Mývatnshringurinn 2025 - Post Race Pistill

The Rift 2025 - Frá himnaríki til........

Negri í Þistilfirði