Pirrrrrr

Í blokk.........

Eftir mjög vel heppnaða VO2 max blokk, þar sem ég fann hreinlega formið kikka inn og þakið hækka, þá fékk ég eitthvað helvítis kvef og slappleika. Tímasetningin hefði varla getað verið verri.

Ég var reyndar með smá kvefeinkenni í síðustu viku í miðri blokkinni, en HRV, hvíldarpúls og aðrir helstu mælar voru allir í grænu. Allt benti til þess að ég væri að ná góðri aðlögun og endurheimt þrátt fyrir smá hnökra. Mánudagurinn var þokkalegur (hvíldardagur), en á þriðjudaginn tók ég nokkuð krefjandi yfir/undir æfingu þar sem lappirnar gengu mjög hægt. Það var fyrsta merkið um að eitthvað væri ekki alveg eins og það átti að vera.

Í gær (miðvikudag) þurfti ég svo að stytta æfinguna og sleppa ræktinni. Í dag hef ég lítið sem ekkert skánað og ætla ekki að æfa neitt. Á morgun á ég erfiða æfingu á plani, en miðað við stöðuna lítur út fyrir að það þurfi að breyta henni – eða jafnvel sleppa henni alveg.

Það er alltaf ótrúlega erfitt að sætta sig við að þurfa að slá af inngjöfinni akkúrat þegar vel gengur. Þegar maður finnur að formið er að rísa vill maður helst ýta enn fastar. En þetta er einmitt tímapunkturinn þar sem skynsemin þarf að taka yfir. Ef ég myndi þrjóskast og ýta í gegn væri hættan meiri á lengri veikindum, lakari endurheimt og minni aðlögun til lengri tíma. Nokkrir dagar í hvíld kosta lítið, en tvær til þrjár vikur í bakslagi kosta mikið.

Ég hef sloppið ótrúlega vel síðustu ár og það er mjög sjaldgæft að ég klári ekki vikurnar mínar nákvæmlega eins og þær eru skrifaðar. Kannski er þetta bara áminning um að líkaminn er ekki vél, jafnvel þó við reynum stundum að láta hann fúnkera þannig.

Í gær fór ég svo á kynningu hjá Afrex um VO2max mælingar og varð enn spenntari fyrir að prófa slíka mælingu. Að hluta til er það einföld forvitni, að sjá hvar raunverulega VO2 max-ið mitt liggur- en ekki síður að fá nákvæmari upplýsingar um mjólkursýruþröskuldana og fá betri innsýn í næstu skref í þjálfuninni. Ég ætla að tékka hvernig Ingvari líst á það.

En allavega, þessa stundina er sennilega besta æfingin einfaldlega að hvíla.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Mývatnshringurinn 2025 - Post Race Pistill

The Rift 2025 - Frá himnaríki til........

Negri í Þistilfirði