Fimmtudagur, 26. nóvember 2026

 Vaknaði 06:30- át, drakk kaffi og rölti í vinnu í blíðskaparveðri. Náði að vinna niður smá stabba af málum sem hafa setið á hakanum og það létti aðeins á mér. Annars ekkert allt of vel stefndur. Tók strætó heim og hjólaði rólega í klukkutíma. Eftir það kikkuðu síðustu tveir VO2 dagar og lyftingar inn og ég var algjörlega búinn á því. Fór á fund í húsfélaginu kl. 18:00 og náði mér svo í skyndibita, fór heim og horfði á fréttir. Fór snemma í rúmið, las eina smásögu og horfði á bíómynd þar til ég var að leka út af. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Blogg um ekkert

Það sem er af mér að frétta......