Úthvíldur á gömlu hjóli

Annar dagurinn í röð sem ég nota gamla hjólið.

Þegar ég fór með TCR hjólið í Útisport kom í ljós að annar stimpillinn í bremsudælunni að aftan var gjörsamlega steiktur. Þeir eru eitthvað að skoða þetta og ég veit ekki hvenær ég fæ hjólið aftur. Þá var nú gott að eiga gamla hjólið ennþá og ég reif það af trainer-num í gær, pumpaði í dekkin og smurði keðjuna. Ég er líka guðs lifandi feginn að ég var ekki búinn að selja vattapedalana og ég setti í þá ný batterý og tengdi við nýju hjólatölvuna án vandræða.

Ég hélt það yrðu mikil viðbrigði að fara af nýja hjólinu yfir á það gamla en ég verð að segja að ég trúi því varla hvað munurinn er lítill. Ég varð nánast svekktur hvað er gott að hjóla á gamla hjólinu. Ég ætla ekki að segja að ég finni ekki mun en hann er minni en ætla mætti. Ég ætla að gera smá samanburðarpælingar:

Focus Izalco Race 2018


Gamli Gráni.

Ég keypti hjólið á tilboði sumarið 2019 og borgaði 195.000 kr. Á þessum tíma eru púðabremsur að mestu á útleið og það er sennilega ástæðan fyrir því hvað ég fékk það á góðu verði. Á þessu hjóli er ég búinn að hjóla 5.000 km úti og rúmlega 8.000 km á trainer.

Gírarnir eru Shimano 105 (víraskiptingar) sem er fyrir fólk í neðri millistétt- ef það meikar sens. Þetta er s.s. engin verkamannaútgáfa og býsna skothelt dót haldi maður þeim vel við. Ef fólk er að fá sér sitt fyrsta hjól og það er með 105 grúppu mæli ég alltaf með því.

Felgurnar eru budget Shimano R5 úr áli. Ég var lengi að spá í að sleppa því að kaupa mér nýtt hjól og skipta bara út þessum felgum fyrir léttari carbon felgur sem eru dýpri og hafa minni loftmótstöðu. En það var bara pakki upp á 200 þúsund krónur og kom því ekki til greina. En þessar ódýru álfelgur er samt ekkert svo slæmar og ég fann strax mikinn mun þegar ég skipti út dekkjunum sem komu á því fyrir Vittoria Corsa keppnisdekk.

Stellið er full carbon og það hlýtur eitthvað að hafa verið gert rétt þegar það var hannað því mér finnst þetta hjól alveg rosalega "nimble" og "responsive" (pardon my french). Ef maður vissi ekki aura sinna tal er ég viss um að það væri hægt að búa til úr því alveg hrikalegt skrímsli. Nýjar felgur, léttari hnakkur og hnakkpípa, carbon stýri- og felgur.

Bremsurnar eru Shimano 105 púðabremsur og ég verð að viðurkenna að það truflaði mig aldrei mikið að vera á púðabremsum, þ.e. þegar það er þurrt úti. Um leið og það fer að rigna fer maður að finna mun og það gæti verið varasamt í brekkum. Eins er töluverður munur þegar maður þarf að bremsa snögglega, þá eru diskabremsur miklu öflugri. Kosturinn við þessar púðabremsur er hinsvegar lítið viðhald. Ég er enn ekki búinn að þurfa að skipta um púða og það hefur aldrei neitt klikkað.

Giant TCR Advanced Pro Disc 1 AX (2022)

Giant TCR við Þingvallavatn.

Ég keypti þetta hjól í júlí í fyrra og ég fékk það á alveg fáránlega góðu verði. Það eina sem ég vil segja er að sambærilegt hjól kostar ennþá 850.000 kr. í Bretlandi. Ég er búinn að hjóla rúmlega 3200 km. á hjólinu og það hefur aldrei neitt klikkað ef frá eru talin þessu bremsuvandræði, sem að hluta til gætu skráðst á að maður hafi ekki verið búinn að skipta út klossunum. Tene-ferðin hefur væntanlega spænt þeim ansi vel upp.

Í blogg-geymslunni finn ég gamla færslu þar sem ég var nýbúinn að fá hjólið og þar reyndar tala ég um hvað ég finni mikinn mun á þessum hjólum. Ég er því kannski aðeins að tala í kross hérna- en það verður forvitnilegt að skipta aftur af því gamla og yfir á Giant. En hver er helsti munurinn á þessum hjólum?

Gírarnir eru Sram Rival eTap og eru batterís knúnir. Þó þeir séu ekki úr efstu hillu hjá Sram þá finnst mér þeir alveg sjúklega góðir og hafa aldrei slegið feilpúst. Maður getur fínstillt þá í gegnum app og það eru til allskyns fítusar, t.d. að láta hjólið skipta niður um 2 gíra að aftan þegar maður skiptir upp á stóra tannhjólið að framan. Ég fer aldrei aftur á víraskiptingar og þó að Shimano 105 séu fínir gírar þá er viðhaldið miklu meira.

Felgurnar eru millidjúpar Giant SLR 1 42 Carbon felgur. Ég fann það strax og ég settist á þetta hjól hvað það getur munað um að vera á góðum felgum. Mér leið eins og ég væri að skera malbikið. Þær eru líka mikið léttari en álfelgurnar.

Stellið er að sjálfsögðu full carbon líka og eins og ég kom inn á í pistlinum í fyrra þykir Giant hafa gert mjög vel þegar það hannaði þetta stell. Virðast hafa náð að hanna létt og lipurt klifurstell sem er samt með litla loftmótstöðu og það er hrikalega gott að hjóla á því.

Bremsurnar eru Sram Rival diskabremsur og þær hafa svínvirkað og ég gef þeim góða einkunn. Maður þarf bara að muna að fylgjast betur með bremsuklossunum.

Giantinn upp á vegg að bíða eftir sumrinu en Gamli Gráni í fullri vinnu. Það sem ég er feginn að hafa ekki selt gamla hjólið.

Niðurstaða og samanburður

Búnaður:

Þegar maður ber saman helsta búnað þá klárlega tekur Giant hjólið gamla hjólið í nefið. Bremsur, gírar og felgur eru miklu betri og þar held ég að aðal munurinn liggi. Þarna er ég að tala um þægindi, áræðanleika og minna viðhald (aðalega gírarnir). Hnakkurinn sem kom á Giant hjólinu var líka miklu betri en upprunalegi hnakkurinn á Focus hjólinu.

Brekkur:

Þegar kemur að því að bera saman hvernig er að hjóla á þeim, þá fer þetta að verða snúnara. Giant vinnur klárlega en munurinn er minni en ætla mætti. Ég t.d. finn ekkert rosalegan mun þegar ég er að klifra á þessum hjólum þó Giant hjólið sé sennilega 1 kg léttara (á eftir að vikta þau með pedölum). Ég hef grun um að ég klifri betur á nýja hjólinu en það er bara tilfinning.

Stjórnun og meðhöndlun (maneuvering and handling):

Þegar maður er að hjóla innanbæjar og taka mikið af beygjum þá finn ég ekkert rosalegan mun. Focus hjólið er mjög lipurt og mér finnst gott að hjóla á því. Það er samt einhver tilfinning eins og Giant hjólið "skeri" malbikið og liggi aðeins betur.

Langir flatir kaflar:

Stellið á Giant hjólinu var endurhannað með það að markmiði að lágmarka loftmótstöðu og hefur fengið mjög góða dóma fyrir hvernig til tókst eins og ég margoft búinn að taka fram. Sú staðreynd og þessar geggjuðu felgur sem eru á því gera það án efa að verkum, að til að halda hjólinu á tilteknum hraða við gefnar aðstæður, kostar minni orku en að halda Focus hjólinu á sama hraða. Sem sagt, það er eitthvað hraðskreiðara og mér finnst ég finna þennan mun. Ein samlíking væri að maður sé á meiri drossíu sem er límd við götuna. Maður siglir áfram...

En er það svo mikill munur að það skipti einhverju máli þegar ég er t.d. að keppa? Ef munurinn er t.d. 10 vött þá fer það væntanlega að skipta máli, sérstaklega í lengri keppnum. En ég efast nú um að þetta sé að skila mér eitthvað betri árangri, þar eru aðrir hlutir sem vega þyngra; t.d. æfingar, mataræði og hvíld. Ein leið til að kanna þetta væri að hjóla ákveðna vegalengd á báðum hjólum á sömu vöttum og skoða muninn. Það er bara svo margt sem kemur inn í, t.d. munur á vattamælum, vindur og annað. Það væri aldrei alveg  hægt að taka mark á því þó það væri vissulega gaman að prófa.

Að lokum:

Eftir ákveðinni upphæð er náð þegar maður er að kaupa sér götuhjól þá fer hver 100 þúsund kall að skipta minna og minna máli. Munurinn á nýju 100 þúsund- og 300 þúsund króna götuhjóli er verulegur. Munurinn á 700 þúsund- og 1,5 milljón króna hjóli er sennilega miklu minni. Þetta gæti kannski skipt vel þjálfaðan íþróttamann einhverju máli (marginal gain) en verður ekki til þess að einhver gúbbi vinni keppni bara vegna þess að hann sé á svo dýru og góðu hjóli. Hann ætti frekar að nota peninginn í að fara í ræktina, kaupa hollari mat og borga þjálfara.

Fyrir þá sem langar til að fá sér götuhjól og prufa þetta segi ég; lestu hvernig dóma hjólið fær (hvernig er að hjóla á því) og horfðu á hvernig gírar eru á því. Ekki freistast til að kaupa hjól með drasl gírum og hugsa að þú ætlir að uppfæra þá seinna. Það er ógeðslega dýrt og oft ekki hægt. Sinntu viðhaldi, þrífðu reglulega og smyrðu. Kauptu góð dekk og hafðu réttan loftþrýsting. 

Ég er hrikalega ánægður með Giant hjólið og þar vega þyngst virkni og áræðanleiki gíra, bremsurnar og felgurnar. Og svo get ég sagt sjálfum mér að ég fari eitthvað hraðar án þess að geta fullyrt neitt um það.

Ég ætlaði að enda þetta á því að skrifa hvernig ég kem undan hvíldinni en þetta er orðin svo mikil (og kannski samhengislaus) langloka að ég geymi það þangað til á morgun. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap