Nýja hjólið- fyrstu kynni

TCR ADVANCED PRO DISC 1 AX.


Við Harpa fórum niður í Útisport í gær að ná í nýja hjólið mitt og nú er ég búinn að taka á því einn snúning. Þegar ég prufaði hjólið í búðinni fann ég alveg að þetta var gott hjól, en það átti samt eftir að koma mér skemmtilega á óvart að prufa það almennilega. Þetta hjól er GEGGJAÐ!!

Ég nenni ekki að fara út í djúpar tæknilegar upplýsingar um þetta enda er það ekki minn tebolli en ætla samt aðeins að velta fyrir mér hvað gerir þetta hjól svona gott.

Á leið úr Jólahúsinu í gær.

Maður þarf ekki að lesa marga dóma um þetta hjól til að átta sig á því að Giant hefur tekist vel til þegar þeir hönnuðu þetta stell. Þetta hjól er alveg skuggalega lipurt, létt og svínliggur. Sumir myndu flokka þetta sem klifurhjól en stellið er samt líka hannað til að lágmarka loftmótsstöðu. Það sæmir sér því vel á ráslínu í hvaða keppni sem er.

Summing up the new TCR is easy – it’s simply the finest race-bred bike Giant has produced to date. And considering Giant’s track record, that’s quite an accolade.

- bikeradar.com

Felgurnar á hjólinu eru líka ekkert slor og spurning hvort þær eigi ekki stóran þátt í því hvað maður finnur mikinn mun á þessu og gamla hjólinu. Í vor var ég að spá í að uppfæra felgurnar á gamla hjólinu en hætti við þar sem verð fyrir góðar felgur fer yfirleitt ekki undir 150 þúsund kall. Þarna koma þær bara með í pakkanum! Dekkin eru slöngulaus frá Giant og það á eftir að koma í ljós hvernig þau endast. En mér fannst hjólið liggja vel og var ánægður á þessum stutta túr.

Giant's second-string 'Wheelsystems' are impressively light, fast and judging by the SLR 1 Disc Full Carbon 42s are a super upgrade to any bike at a very competitive price

-Cycling weekly

Gírarnir á hjólinu eru Sram Rival rafmagnsskipting- 2x12 gíra. Maður þrýstir bara létt á takka og lætur tæknina og rafmagnið sjá um þetta. Skiptingin er vel staðsett og auðvelt að nota hana, jafnvel í þykkum  vettlingum. Virkaði eins og nýsmurður ugluskítur í fyrstu ferð.

Hjólið kemur með "watta-sveifum" - en það þýðir s.s. að maður fær aflmæli með í kaupunum. Það var ekkert mál að tengja hjólatölvuna við þráðlaust og þetta svínvirkaði. Núna get ég selt Garmin Rally pedalana mína sem kostuðu 120 þúsund með mæli- bara öðrumegin.

Fullorðið barn með nýtt leikfang.

Hnakkurinn er frá Giant og mér fannst hann virkilega þægilegur við fyrstu kynni. Ég á reyndar eftir að fara í bike fit og þá kemur í ljós hvort ég þurfi að skipta honum út.

Stýrið er þægilegt, vel lagað og teipið á því er stamt og gott. Þetta er bara klassískt götuhjólstýri og auvðelt að taka það af fyrir flutning sem er mikill kostur. Stamminn er reyndar frekar hár en ég ætla að bíða með að lækka hann þar til ég er búinn að fara í bike fit. Það fylgja því reyndar aukin þægindi að hafa stýrið hátt því maður situr uppréttari. Á móti kemur að maður fórnar smá hraða og þarf að eyða meiri tíma í "droppunum" (þið afsakið en ég kann ekki þessi orð á íslensku). Að lokum þá kemur festing fyrir hjólatölvu á stýrinu með í pakkanum.

Annar stór munur á þessu og gamla hjólinu eru diskabremsurnar. Það truflaði mig aldrei verulega að vera með púðabremsur þegar þurrt var úti, en um leið og það fór að rigna varð virknin lélegri. Bremsurnar á þessu svínvirka og gefa manni aukið öryggi, sértaklega þegar maður er að fara niður brekkur og þarf að hægja fyrir beygjur. Þar að auki steikir maður púðabremsur þegar maður þarf að fara niður af háum fjöllum og ég hefði seint tekið gamla hjólið með mér til Tenerife, Kanarí eða í Alpana. Þetta hjól fær pottþétt að fara með í allar utanlandsferðir.

Niðurtaða: Giant vinnur eftir þeirri stefnu að framleiða eins mikið af sínum íhlutum sjálft án þess að það komi niður á gæðum. Giant er líka með það að markmiði að þegar þú kaupir hjól, þá sé það tilbúið á götuna. Aflmælir, geggjaðar felgur og festing fyrir hjólatölvu eru dæmi um það. Og þeim tekst að gera þetta á verði sem fæstir framleiðendur geta keppt við. Það er algengt að fólk kaupi sér hjól og hugsi með sér að það uppfæri það bara með tímanum. Staðreyndin er hinsvegar sú að kostnaður við nýjar skiptingar, felgur og watta-mæla er fljótur að telja í hundruðum þúsunda. Þá er gáfulegra að fara bara í svona kaup.

En þó Giant sé að bjóða verð sem erfitt er að keppa við, þá segir það ekki alla söguna. Tilboðið og þjónustan sem Útisport veittu mér gerðu útslagið með að ég stökk á þetta. Þeir eru að bjóða verð sem eru sambærileg eða betri en í útlöndum. Ég er mjög ánægður að hafa getað verslað mér hjól í heimabyggð og er staðráðinn í að beina flestum mínum viðskiptum til Egils og félaga, jafnvel þó þeir geti í sumum tilvikum ekki keppt við bike24 og aðrar netverslanir í varahlutum og öðru.

Að lokum vil ég velta upp spurningunni fyrir hvern þetta hjól er? Ég vil byrja á því að taka fram að ég er ekki hokinn af reynslu þegar kemur að hjólreiðakeppnum og það er kannski líka vafasamt að vera með of miklar yfirlýsingar eftir bara eina ferð. En ég læt samt vaða.

Keppnishjólið Giant TCR: Það er hægt að fá "aero" hjól sem myndu spara manni nokkur vött í loftmótstöðu og þar með gefa manni forskot og aukinn hraða á flatlendi. Það var stefnan hjá mér að kaupa þannig hjól þar sem mér er gjarnan droppað af dísel-sleggjum við þannig aðstæður. En þá væri maður líka að fórna ákveðnum þægindum, auk þess sem þannig hjól taka á sig meiri hliðarvind- og við erum jú á Íslandi. 

Ég held að þetta hjól fari nálægt því að hitta einhvern sweetspot þarna á milli- enda eru hjólaframleiðendur  aðeins farnir að reyna að finna milliveginn milli klifurhjóla og aero-hjóla, dæmi; Specialized Tarmac SL7. Þeger ég skrái mig í keppni er ég nú bara að reyna að gera það til að hafa gaman og ef úrslitin verða vonbrigði þá held ég að ég geti seint kennt þessu hjóli um það.

Njóta-hjólið Giant TCR: Það er alveg hrikalega gott að hjóla á þessu hjóli og ég get ekki beðið eftir að taka lengri túra og fara með það í hjólaferðalög erlendis. Í sumum dómum sem ég hef farið yfir er einmitt talað um hversu þægilegt er að hjóla á því lengri leiðir þrátt fyrir að það sé hannað sem keppnishjól. Hæðin á stýrinu eins og hún er núna gerir það að verkum að maður situr frekar uppréttur og staðan er því ekki mjög aggressív. Það hentar vel minna reyndum hjólurum, eldra fólki og þeim sem eru slæmir í baki. En það er líka hægt að droppa stýrinu niður ef maður þolir það til að minnka loftmótstöðuna. Ég ætla að skoða það.

Klifurhjólið Giant TCR: Sumir halda að maður sé geðveikur þegar maður segir þeim að manni finnist ekkert eins skemmtilegt og að hjóla upp brekkur. En þannig er ég nú bara. Ég á eftir að prufa það almennilega í löngum brekkum en ég veit að þar mun það skína skærast. Ég er farinn að láta mig dreyma um langa daga í frönsku Ölpunum og á Kanarí á þessu hjóli.

Mín upplifun er sú að ég hafi keypt nokkur hjól í einu. Ég myndi seint mæla með því að fólk sem hefur ekki verið að hjóla kaupi sér þetta sem fyrsta hjól, enda er það heldur ekki alveg gefins. En fyrir fólk sem elskar að hjóla, sama hvort það eru dagstúrar, samhjól, hjólaæfingar eða keppni, þá gæti ég ekki mælt meira með því.

I think this is the beginning of a beautiful friendship

-Rick Blaine

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap