Jæja af okkur er allt gott að frétta og allir að deyja úr heilbrigði. Stóru strákarnir í sundi, fótbolta, skátum og nóg að gera á þeim bænum. Sá stutti er farinn að éta graut og svona alveg við það að fara að skríða. Hann ræður ekki alveg hvort hann fer áfram eða afturábak en getur snúið sér ef hann nær gripi á gólfinu og borið sig eitthvað um. Alveg ótrúlegt að fylgjast með þessu.
Dóri var að eignast aðra stúlku í gær! Til hamingju gamli vinur, frú og börn, hlakka til að sjá ykkur öll.
Jæja þá er ég búinn að skrifa nokkurskonar yfilit/gagnrýni um hjólið mitt. Ég hef ekki haft nokkurn einasta tíma til að uppfæra nördasíðurnar eða skrifa um þjálfun og hef verið að punkta þetta svona niður til hliðar við skóla og vinnu. Ef einhver er að spá í að fjárfesta í hjóli, þá kannski hefur sá hinn sami eitthvað gagn af þessu.
Kveðja, Bjarni
Ummæli