Söngmaður er hann mikill
Fyrsta alvöru baðferðin
Jæja áfram heldur maður að dáðst að erfingjanum og bætir svo stoltur við mynd og mynd í albúm. Í gær var honum smellt í bað og kunni hann því svona líka ljómandi vel. Ég er ekki frá því hann sé vel syndur. Í dag lá hann svo upp í rúmi og hjalaði svo fallega að tárvotur faðirinn féll í öngvit og fór að leita að góðum söngkennara á netinu. Ég vil ekki senda hann strax til Ítalíu en þangað leitar hugurinn.
Fór með bílinn á verkstæði í morgun og kom svo við í sundlauginni á leiðinni heim. Synti 1,5km og gekk svo sem ágætlega. Ljómandi gott fyrir hægðirnar að stunda svona morgunsund. En bætist við á græjusíðuna hjá mér og ég kvet alla sem eru áhugasamir um sundfit að kíkja þar inn. Ætla mér svo fljótlega að fara að koma þar inn umfjöllun um buxur, jakka of fleiri föt.
Kveðja, Bjarni
Ummæli
Flottar myndir og flottar græjur, langar einmitt í svona sundfit.