HÍ og Súrdeig
Áðan fékk ég umslag inn um lúguna þar sem mér var tilkynnt að umsókn mín um meistaranám í Íþrótta og heilsufræði MS við íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands hefði verið samþykkt. Þar hafið þið það, ég er kominn í nám aftur.
Svona geta hlutirnir breyst. Það eru ekki nema rétt 3-4 mánuðir síðan ég var skráður doktorsnemi við University of Higlands and Islands í Skotlandi og var að fara að rannsaka eitraða svifþörunga. Það var reyndar tengt vinnunni minni og ég ákvað að setja það á hold og afskráði mig því. Að þessu sinni er það bara af tómri ástríðu og áhuga sem ég fer í þetta og mun halda áfram að vinna hjá BioPol.
Annars gengur allt vel hjá okkur hérna sem fyrr. Ég þarf varla að fara yfir uppskriftina; kúka upp á bak, sofa, éta og ropa. Það er ekki flókið.
Fór í gær og hljóp tempó-hlaup. Þ.e hlaup þar sem maður byrjar rólega en tekur svo nokkra km á meiri hraða. Miða við að vera nánast á keppnishraða. Gekk ágætlega en fékk aðeins í hnéið þegar ég hægði á mér aftur. Fór svo og synti 500 metra skrið þegar ég var búinn. Ætla að hvíla í dag, hlaupa rólegt á morgun og hvíla svo á föstudaginn og sjá hvort ég nái þá ekki góðum tíma í 1. Vetrarhlaupi UFA á Akureyri á laugardag. Verð líka að vera duglegur að teygja og gera æfingar þangað til. Setti inn fjandi góða uppskrift af súrdeigsbollum inn á næringahlekkinn minn ef þið viljið baka eitthvað gott.
Kveðja, Bjarni

Ummæli
Meistaraverkefnið gæti verið rannsókn á því hvernig gengur að virkja heila mafíufjölskyldu til heilbrigðara lífernis ;) Gæti orðið áhugavert viðfangsefni.
kv. Silla