Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2026

Magn og matur

Mynd
Volume vika Búinn að vera í smá andlegri lægð og lítið nennt að skrifa eða pæla. Óvenju lítið spenntur fyrir verkefnum og keppnum sumarsins, en það mun vonandi koma aftur með hækkandi sól. Eftir smá lægð í æfingum finnst mér ég vera að skríða hægt og rólega til baka. Þessi vika er frekar þétt hjá mér og við erum aðeins að keyra upp æfingamagnið. Það ætti að skila sér í litlu stökk í formi, þó líkamanum þurfi að gefa tíma til að fylgja eftir. Til að standa undir þessu hef ég lagt sérstaka áherslu á næringu – bæði magn og gæði. ChatGPT er með mér í liði að stilla af inntökuna og lætur mig borða töluvert meira en ég er vanur. Ég hef átt erfitt með að létta mig síðustu vikur og velti því nú fyrir mér hvort ég hafi einfaldlega verið að borða of lítið miðað við álagið. Hjartsláttatruflanir höfðu ekki gert vart við sig í 2–3 vikur fyrr en í gærkvöldi. Þetta var mjög vægt og líklega tengt auknu álagi vikunnar. Eftir bæði hjartaómskoðun og 48 stunda hjartalínurit hefur hjartalæknir staðfest að ...