Vikulok og hollar fitur!
Hollar fitur |
Eins og ég hef verið að tala um er ég farinn að huga að því hvernig ég nái að létta mig fyrir næsta keppnis-season. Það fyrsta sem ég gerði eftir áramótin var að reyna að sleppa nammi og kökum, en leyfa mér smá um helgar. Það hefur s.s. gengið ágætlega En það er tvennt annað sem ég ætla að gera, nefnilega að herða mig í að fara á hjóli eða labba í vinnuna og reyna að skera aðeins niður fitu og reyna að hafa þá fitu sem ég borða aðeins hollari.
Það var náttúrulega tilviljun að ég hætti að taka í vörina og keypti bíl á svipuðum tíma og því ekki auðvelt að átta sig á því hvað var stærri þáttur í að ég fór að bæta aðeins á mig. En það er víst alveg ljóst að ég er ekki að fara að taka nikotín aftur. Ég held að ég hafi verið að vanmeta hinn þáttinn og þó ég hafi ekki um langan veg að fara þá munar eflaust um það og rannsóknir sýna að maður brennir meira næstu klukkustundirnar eftir að maður hreyfir sig á morgnana.
Varðandi fituna þá er ég búinn að vera að velta þessu fyrir mér í svolítinn tíma og veit að margir atvinnumenn gera þetta þegar þeir þurfa að létta sig. Það getur nefnilega verið varasamt að skera niður kolvetnin þegar maður er í erfiðum æfingum og betra að taka eitthvað af fitunni út. Það er bara að passa að fara ekki út í öfgar og passa að maður fái allar þær hollu fitur sem maður þarf á að halda. Helsta breytingin hjá mér verður minna smjör, feitur ostur og majones sósur sem maður hefur verið að úða á fisk, pítur ofl.
Ummæli