Nautahakk, negull og natrón
Ég fór í Bónus áðan til að kaupa hakk og annað sem okkur vantaði í klassískt fajitas sem við ákváðum að hafa í sunnudagsmatinn. Ég var kominn með Kjarnafæðis nautahakk í körfuna þegar ég tók eftir því að það var stútfull hilla af því en allt annað hakk var búið. Þá rak ég augun í einn pakka af Euroshopper hakki sem beið eftir að eignast vin, skilaði Kjarnafæðis hakkinu og setti hitt í körfuna.
Ég er meðvitaður um að þetta óhapp á leikskólanum í Reykjavík tengist að öllum líkindum meðferðinni á hakkinu þar á bæ og/eða ófullkominni eldamennsku. Samt voru einhver hugrenningatengsl við börn á gjörgæslu í öndunarvél. En Euroshopper hakkið sem reyndist við nánari skoðun vera til helminga ættað frá Belgíu rann ljúflega niður.
Ummæli