Æfingar

Síðustu 4 vikur í æfingum hjá mér- hjól bláteitt, hitt lyftingar.

Það hefur ekki verið mikill ákafi í æfingum hjá mér upp á síðkastið og frekar mikill "off season" fílingur í mér. Ég er yfirleitt lítið spenntur fyrir því að setjast á hjólið en þá kemur alltaf upp í hugan setningin "Steady is key". Ef ég held svona áfram, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár, þá held ég áfram að þróast í rétta átt. 

Það eina sem ég hef áhyggjur af er hvort ég hefði átt að taka lengra frí á einhverjum tímapunkti. Ég missti úr tæpa viku í covid (sem er náttúrulega ekki frí) og svo fór ég til Svíþjóðar í nokkra daga og gerði lítið. Til að bæta þetta upp er ég að spá í að hjóla ekkert síðustu vikuna í nóvember og taka smá aukahvíld áður en Ingvar fer að skóla mig til. Hér koma nokkrir punktar um stöðuna á mér núna:

Jákvæða:
  • Búinn að vera mjög stöðugur þrátt fyrir að vera ekki á plani
  • Framfarir í réttstöðu
  • Efri partur og magi að komast í betra stand
  • Á æfingar á hjólinu þar sem mér finnst ég nokkuð öflugur
Neikvæða:
  • Hef aðeins verið þreyttur í skrokknum síðustu vikur
  • Stirðleiki í löppum
  • Hnébeygja hefur verið erfið og smá pirringur í hnjám
  • Er búinn að bæta á vömbina á mér
Varðandi neikvæðu þættina þá er maður kannski bara að finna fyrir álagi af lyftingum. Og svo er maður reyndar ekkert að yngjast.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap