Bakverkir

Bakverkir geta verið af ýmsum orsökum.

Ég er búinn að vera með bakverki upp á síðkastið og ég veit alveg upp á mig skömmina. Ég er farinn að gera það sem ég ætlaði mér aldrei, þ.e. að hjóla bara og hjóla en hunsa aðra líkamsrækt, s.s. teygjur og styrktaræfingar. 

Ég var frekar slæmur í gær og fann líka fyrir þessu á meðan ég var að hjóla, sem er nýtt. Áður en ég segi hvað ég gerði í gækvöldi til að vinna á þessu, þá ætla ég að renna yfir hugsanlegar ástæður þess að ég er orðinn svona stífur:
  • Aftanverðir lærvöðvar veikir og/eða stífir (hamstring)
  • Slappir magavöðvar
  • Stífir hip-flexors (mjaðma-beygjar??)
  • Stífir lærðvöðvar að framan
  • Stífir og/eða veikir rassvöðvar- djúpu og/eða stóru
Little Thunderbolt Pose

En eins og ég sagði, þá var ég orðinn það tæpur í gær að ég tók mig til og gerði alveg heljarinnar teygjurútínu fyrir alla þess vöðvahópa sem ég taldi upp hér að framan, og viti menn, þegar ég steig fram úr rúminu í morgun fann ég ekki fyrir neinu!!! En það er tvennt í þessu sem ég hef grun um að hafi skipt mestu máli.

Gluteus medius - djúpu rassvöðvarnir.
  1. Gluteus medius- ég hef tekið eftir því að ef ég nudda eða nota harðan lítinn bolta á djúpu rassvöðvana, þá losar það um spennu í mjóbakinu. Þetta er eins og að taka verkjatöflu sem virkar strax. Margir, sérstaklega kyrrsetufólk, gæti kannast við hvað þessir vöðvar eru aumir í víðasta skilningi.

  2. Teygjur framan á læri. Ég hef trassað það svo mikið að teygja framan á lærum, að þegar ég tók pósunar sem er hér fyrir ofan (reyndar ekki með hausinn í gólfi), þá var það alveg ægilega sárt. Lærvöðvarnir á mér, sem aldrei hafa verið sterkari, eru orðnir svo stífir að þetta er eins og tveir steypuklumpar. Ég píndi mig samt niður í pósuna og hélt eins lengi og ég þoldi.
Þetta er nú bara það sem ég hef á tilfinningunni að hafi hjálpað mér mest í gær en auðvitað skiptu hinar teygjurnar, t.d. aftan á lærum og rassi líka máli. En það er skemmst frá því að segja að ég á ekki eitt aukatekið orð hvað þetta virkaði ótrúlega vel og ég er staðráðinn í að halda áfram á þessari braut.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap