Álagspróf fyrir keppni

40 mínutur á stöðugu álagi (steady state).

Nú er ekki nema rétt vika í fyrstu keppni og ég farinn að fá í magann út af þessu. Stundum velti ég því fyrir mér hvað ég er eiginlega að gera sjálfum mér með að vera að keppa í þessum blessuðu hjólreiðum. Ég hef litla trú á sjálfum mér, maður er alltaf með smá hræðslu við að lenda í slysi í hópnum, mér finnst ég ekki tilheyra í þessum hópi, finn fyrir hræðslu að missa hópinn (game over) og svo er náttúrulega leit af einhverju sem er jafn krefjandi líkamlega. Og eftir að hafa verið hjá þjálfara í allan vetur upplifi ég miklu meiri pressu á að standa mig.

Til að róa mig rifja ég upp síðasta bikarmót ársins í fyrra þar sem mér fannst ég loksins vera öruggari í hópnum og þorði að láta að mér kveða. Þó úrslitin hafi ekki verið frábær, þá kom ég brosandi út úr því móti.

Annars er staðan á mér núna sennilega betri en hún hefur nokkurntíma verið. Ég er reyndar 2-3 kg. þyngri en ég vildi vera en ég hef aldrei verið með meira power í löppunum.

Í gær tók ég æfingu sem heitir 40 mínútna Steady State- sem þýðir að halda 40 mínútum á ca. 95% af mesta afli sem maður getur haldið í klukkutíma (FTP). Það er skemmst frá því að segja að ég slátraði þessari æfingu og hélt 260 vöttum í þessar 40 mínútur án þess að vera neitt að ganga fram af mér. Púlsinn reis úr 145 í byrjun og var nokkuð stöðugur í 153 í lokin. Til samanburðar hefði púlsinn hjá mér sennilega verið um 170 í lokin á 20 mínútna FTP testi.

En allavega, það var mjög gott að prófa að taka svona langt effort stuttu fyrir keppni því nú átta ég mig betur á hvað ég get gert. Ef svo ólíklega vill til að ég lendi í að reyna að stinga af einhvern hóp með einhverjum veit ég að ég á að geta haldið þessu afli nokkuð lengi. En ég hlakka til að heyra hvað Ingvar hefur um þetta að segja.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði