Nikotine svelti
Simulated mean heart rate following application of nicotine patches at rest (left) and during exercise (right). - M. Gajewska et.al, 2014) |
Gærdagurinn var ekki góður hjá mér varðandi ruglið á hjartanu. Í rauninni versti dagurinn síðan á föstudaginn þegar kíkti á bráðamóttökuna. Ég vaknaði 05:45 í gærmorgun, tók æfingu og fór svo út á flugvöll. Þar settist ég niður, fékk mér morgunbollann og tróð í vörina á mér. Ég var rétt kominn í loftið þegar þetta byrjaði og þetta var meira og minna að trufla mig í allan gærdag. Það var eitthvað sem sagði mér að nikótínið væri ástæðan og ég tók þá hræðilega erfiðu ákvörðun um að prufa að fá mér ekki í vörina þegar ég vaknaði í morgun og bíða og sjá hvað gerðist. Ef aukaslögin kæmu aftur myndi ég klessa lummu í andlitið á mér.
Klukkan er nú orðin 12:00 og ég hef ekkert fundið fyrir neinum aukaslögum og það sem meira er þá er hvíldarpúlsinn hjá mér dottinn niður í 51 í augnablikinu. Á venjulegum degi þar sem ég er að brasa og vinna eins og í dag er hann kannski 60 (stútffullur af koffíni og nikótíni) . Ég sé alveg daga með 55 en það er sjaldgæft þar sem ég sef aldrei með úrið. Þetta eru blendndar tilfinningar en mér finnst samt það vænt um heilsuna að ef að ég hjartað hefur frið finnst mér líklegt að ég taki cold turkey á eitrið.
Annars er graf hérna fyrir ofan sem sýnir áhrifin af nikótíni á hvíldarpúls og púls við æfingu. Þarna eru stærstu skammtarnir 4 mg en ég held að Loop Habanero Mint [Extra Strong] sem ég var að taka séu 10 mg./púðinn. Þannig að það er kannski ekki ólíklegt að það hafi haft einhver áhrif á hjartað.
Ummæli