Meira um áhrif nikótíns á hjartsláttinn
Melding úr úrinu mínu um breytingar á hvíldarpúls. |
Í gær fékk ég meldingu úr Apple Health um breytingar á hvíldarpúlsi og smá graph sem fylgdi með. Það er ágætt að skoða þetta til að minna sig á afhverju maður er að hætta að troða í vörina á sér. Hvíldarpúlsinn hjá mér hefur hrunið og það gerist akkúrat þegar ég hætti þessum óþverra.
Eins og síðustu daga hefur þetta gengið þokkalega að mestu að vera án nikótíns, en það má segja að það hafi komið smá bakslag í gærkvöldi. Þegar ég var búinn að borða og sestur fyrir framan fréttirnar þá helltist yfir mig löngunin. Já og reyndar líka núna í morgunsárið þar sem ég sit og sötra morgunkaffið. Það eru þessi móment sem maður tengir helst við neysluna og eru fjandi erfið; líka eftir æfingar, í heita pottinum og þegar maður fer í bað. En jæja, það er bara að sjúga upp í nefið og hætta að væla.
Vikan á Strava endaði í 11,5 klst. |
Ég kláraði vikuna í gær með 11,5 klst en Ingvar hafði bara sett inn 8,5 klst. Þetta var eiginlega allt zone 2 vinna og Ingvar var bara ánægður með vikuna og að ég hafi náð að bæta svona við á skynsamlegan hátt. Núna er Ingvar búinn að henda á mig threshold viku sem er reyndar bara rúmlega 8 klst. en ef ég verði í bænum á Páskadag hendi ég kannski inn aukaæfingu.
Ummæli