Í gangi núna - Kanarí 🌴 ☀️

Á frægum djúsbar lengst uppi í fjöllum.

Hef ekki gefið mér tíma til að droppa hérna inn og blogga enda s.s. í mörgu að snúast hér í sólinni. Finnst ég verði að henda hérna inn einu stuttu enda bullandi traffík á síðunni- takk fyrir það! Við höfum það geggjað gott og þessi eyja stendur sannarlega undir væntingum hjólalega séð. Það var búið að segja okkur að þetta væri betra en Tenerife en ég bjóst ekki við að þetta væri svona sturlað. Umhverfið, hjólamenningin, fjöllin, leiðirnar, kaffihúsin, veðrið.... allt upp á 10.

Síðustu vikur á Strava- það er nokkuð ljóst að CTL (Chronic Training Load) skorið mitt á eftir að rjúka ansi vel upp hérna.

Ég reyni að gefa mér betri tíma seinna í að gera upp ferðina og fara aðeins yfir leiðirnar en ég nenni því ekki núna. En eitt er víst, að maður er taka ansi vel á því. Velti fyrir mér hvort ég hefði átt að henda inn hvíldardegi en ég bara tími því ekki. Vonum að það sleppi enda er þetta lang mest rólegt hjá okkur. 

Meira seinna...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap