Vikan með Bjarna Marteini.......

Við börnin fórum að heimsækja Egil frænda á öskudaginn. Ég og Brynleifur erum of gamlir til að taka þátt í þessu en Dagbjört var seniorita og Egill dádýr.

Ég kem vel undan síðustu viku þrátt fyrir þessi tvö test sem ég fór í. Kannski þjösnaðist ég bara ekki nóg á mér? Ég er allavega ekki með strengi og mér líður vel í líkamanum. Þar sem þessi vika er barnlaus stakk ég upp á við Ingvar að hafa vikuna frekar svera og hann tók mig á orðinu.

  • Mánudagur: Frí
  • Þriðjudagur: 1:29 klst. Anaerobic 30/30
  • Miðvikudagur: 3:00 klst. endurance
  • Fimmtudagur: 1:29 klst. Anaerobic (5x1mín)
  • Föstudagur: 1:30 klst. recovery
  • Laugardagur: 3:09 klst. tempo (3x15mín)
  • Sunnudagur: 3:00 klst. endurance
Samtals: 13:37 klst.

Mér líst vel á þetta og við höldum áfram að leggja inn á bankann! Það er eins gott að næra sig vel þessa vikuna.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap