Meira um orkuinntöku á hjólinu

Hér fyrir ofan má sjá hvað ég át á æfingunni í gær og hvernig því ber saman við viðmið um kolvetna- og orkuneyslu á æfingum. Efst er hvað ég lét ofan í mig þessar 3 klst. (utan við vatn) og hvernig það kom út miðað við viðmið (breytileg eftir einstaklingum). Ég negldi kolvetnin þokkalega og var 22 gr yfir ef ég miða við 45 gr/klst. Ég var hinsvegar 585 ckal undir viðmiði miðað við 500 cal/klst og 886 undir þeim 1801 kcal sem ég brenndi skv. Strava.


Eftir 3 tíma túrinn í gær fór ég að spá í hvort ég hafi verið að úða í mig óþarflega mikilli orku á hjólinu? Ég fann það reyndar þegar ég var að byrja að ég var ekkert sérstaklega vel hlaðinn fyrir æfinguna. Mér fannst ég þurfa að fylla á tankinn og úðaði í mig öllu sem ég setti í gluggann (jafnt og þétt). Fyrir stórar æfingar skiptir máli hvað maður át í síðustu stóru máltíðinni fyrir æfingu. Í gær át ég saltkjöt og baunir í hádeginu sem er ekki alveg ídeal fyrir svona átök- þó baunir, kartöflur og rófur séu náttúrulega kolvetnarík fæða.

When it comes to fueling during exercise, particularly endurance activities like cycling, focusing on carbohydrate intake is often more crucial than total kilocalorie (kcal) consumption. Carbohydrates are the primary fuel source for moderate to high-intensity exercise, and maintaining adequate carbohydrate stores can help sustain your energy levels and performance.

Eftir að hafa tekið þetta saman þá sé ég að ég hef hitt nokkuð vel á að innbirgða rétt magn af kolvetnum til að halda mér gangandi út æfinguna. Ég hef á tilfinningunni að ég sé yfirleitt nálægt lagi í þessum efnum en nenni aldrei að reikna þetta út. Varðandi hitaeiningarnar, þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að vera undir viðmiðið, mikilvægast er að fylla á kolvetnabirgðirnar til að standa undir æfingunni. Hitt nær jafnvægi aftur ef maður er skynsamur að næra sig yfir daginn. 

Fyrir hlaup og hjól skiptir þyngdin miklu máli og það er freistandi að fara að reyna að halda í við sig til að létta sig eftir stórar æfingar. Ég legg frekar áherslu á að vera vel nærður og geta staðið undir æfingamagninu. Að vera sífellt að keyra í orkuskuld (calorie deficit) til að ná af sér einhverjum kílóum endar oft með ósköpum. Fólk verður orkulaust, klárar ekki æfingar og skilur ekki neitt í neinu. Sumir halda jafnvel að þeir séu ekki að æfa nóg og fara að bæta í. Þetta verður vítahringur sem getur endað með burnout-i.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap